A A A

Tilboð óskast í nótabátinn við Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti

Stjórn Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti og Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps hafa ákveðið í samráði við Þjóðminjasafn Íslands að láta fjarlægja nótabátinn við Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti.

Báturinn skal fjarlægður af safnasvæði Minjasafnsins fyrir 31. maí nk. og er flutningur á kostnað væntanlegs eiganda.

Þeir sem kynnu að hafa áhuga á að eignast bátinn, sendi tilboð til formanns stjórnar Minjafnsins í síma 490 2301 eða á netfangið magnus@atvest.is fyrir 30. maí nk. að öðrum kosti verður honum fargað. 

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.

 

 

Stjórn Minjasafns Egils Ólafssonar

Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps

Matís leggst á árarnar með heimamönnum við Breiðafjörðinn og sunnanverða Vestfirði

Matís leggst á árarnar með heimamönnum beggja vegna Breiðafjarðar og hefur blásið til sóknar í matavælaframleiðslu og tengdum greinum á svæðinu. Liður í þeirri sókn er ráðning tveggja starfsmanna með starfsstöð á sunnanverðum Vestfjörðum en þessir starfsmenn bætast í hóp þeirra tveggja sem nýlega voru ráðnir til starfa á Grundarfirði á Snæfellsnesi.  Starfsmennirnir fjórir munu starfa í nánu samstarfi sín á milli og við aðra starfsmenn Matís, um allt land.

...
Meira

Laust starf

Tálknafjarðarhreppur auglýsir eftir starfsmanni í félagslega heimaþjónustu. Um 25% starf er að ræða. Vinsamlega hafið samband við Elsu Reimarsdóttur, félagsmálastjóra varðandi nánari upplýsingar um starfið, í síma 450 2300 eða með tölvupósti elsa@vesturbyggd.is.

 

Laun eru eftir kjarasamningum FOS-VEST.

 

Ráðið verður sem fyrst í starfið.

 

Undirrituð er með viðtalstíma alla þriðjudaga á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps frá 10:00-16:00, sími 456 2538.

 

Elsa Reimarsdóttir

Hús til leigu eða sölu

Móatún 23, Tálknafirði.
Móatún 23, Tálknafirði.

Móatún 23 er til leigu/sölu.
Húsið er 170,2 m2 með bílskúr, 5 svefnherbergi og nýuppgert baðherbergi.

 

Hesthús til leigu/sölu

Til sölu er hesthús við Hrafnadalsveg 41. Um er að ræða tvær einingar 41,4 m2. Í húsinu er kaffistofa og hnakkageymsla.

 

Nánari upplýsingar gefur Marinó Bjarnason í síma: 8617090.


Útskrift Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin föstudaginn 25. maí í hátíðarsal skólans í Grundarfirði. Hátíðin hefst kl.15:00 og að henni lokinni verða kaffiveitingar í boði skólans.

 

Allir velunnarar skólans eru velkomnir.

Skólameistari

Stofnfjárfestar í SpKef boða til aðalfundar

Samtök stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík hafa ákveðið að vera með aðalfund miðvikudaginn 30. maí nk. og hefst fundurinn kl 18. Fer hann fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Áhugi er fyrir að vera með fjarfundabúnað á fundinum svo flestir stofnfjáreigendur geti fylgst með. Það virðist hafa myndast áhugi með fólks,á því að skoða málsókn á hendur yfirmönnum, stjórn og endurskoðendum Sparisjóðsins í Keflavík. Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður samtakana ætlar að mæta á fundinn og kynna fyrir okkur hvernig staðið yrði að þessum málaferlum. Reikningar félagsins verða kynntir og ýmis önnur hagsmunarmál rædd,“ segir í tilkynningu frá Samtökum stofnfjárfesta í SpKef.  

Frétt tekin af visir.is

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón