A A A

Eldhúsið á tjaldsvæðinu lokar tímabundið

Tjaldstæðagestir athugið að eldhúsið verður lokað laugardaginn 18.júlí frá kl 17:00, einnig verður stórum hluta af tjaldsvæðinu tekinn frá fyrir Húsbílafélagið sem ætlar að sækja Tálknafjörð heim sama dag.
 

kveðja, fyrir hönd tjaldsvæðins
Alma D. Sigurvinsdóttir

Hvað býr í frumskógi Friðlandsins í Vatnsfirði

Hvað leynist djúpt í íslenskum frumskógi þar sem ekki nægir að standa upp til að rata til baka? Þar er falinn fjarsjóður fjölbreytts náttúruminja og lífríkis og jafnvel eitthvað sem þig langar að skoða betur? t.d. stórkostlegir fossar, brönugrös eða berggangar. 
 
Landverðir ætla að bjóða upp á gönguferð inn með Vatnsdalsá í Vatnsfirði mánudaginn 13. júlí. Mæting er við Hótel Flókalund kl. 13:00, þar verður sameinast í bíla og ekið inn með Vatnsdalsvatni. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri, vera í vatnsheldum skóm og hafa með sér vatn og nesti. Gangan er miðlungs létt og tekur um 4 klst.
Nánari upplýsingar í síma 822-4019. Vatnsfjörður - Friðland/Nature Reserve á Facebook.


Hlökkum til að sjá ykkur
 
Landverðir

Íþróttamiðstöðin hefur opnað Facebooksíðu

Íþróttamiðstöðin Tálknafirði hefur opnað Facebook síðu undir nafninu ,,Íþróttamiðstöðin Tálknafirði". Þar má nálgast helstu upplýsingar er tengjast starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar. Þar er að finna tilkynningar, stundatöflur og opnunartíma.
 
Við bendum á að senda má fyrirspurnir á netfangið sundlaug@talknafjordur.is og á Facebook síðu okkar.

Samstarf heimamanna í náttúruvernd

Þáttakendur í hreinsunarstarfi
Þáttakendur í hreinsunarstarfi
1 af 4

Vesturbyggð, Umhverfisstofnun, Náttúrustofa Vestfjarða og landeigandur á Rauðasandi stóðu að samstarfsverkefni um hreinsun strandlengjunnar á Rauðasandi laugardaginn 4. júlí. Verkefnið var auglýst og óskað eftir sjálfboðaliðum af svæðinu til að aðstoða við hreinsunina. Alls tóku 20 manns þátt í verkefninu og þar af 5 sjálfboðaliðar á vegum Umhverfisstofnunar. Tekinn var fyrir austurhluti strandlengjunnar á Rauðasandi við bæinn Melanes, þ.e. frá Sjöundá að Hafnarvogi, samtals um 4 km. Í heildina var safnað saman um 30 m3 af rusli. Mest af ruslinu var tengt sjávarútvegi, s.s. fiskinet, netakúlur, bobbingar og baujur. Þar að auki var mikið af einnota drykkjaumbúðum úr plasti og gleri.
 

Þetta verkefni er unnið í tengslum við OSPAR samninginn sem Ísland er aðili að. Samningurinn gengur út á verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins, meðal annars með því að draga úr mengun frá landi og uppsprettum á hafi. Á hverju ári berst mikið af rusli í hafið og safnast saman á hafsbotni, úti á opnu hafi eða rekur upp í fjörur. Til að leysa þetta stóra vandamál þarf samstarf allra aðila. Verkefnið gengur m.a. út á að skrá hverskonar rusl við erum að hreinsa úr fjörunum og finna út hvaðan það kemur svo hægt sé að fara í forvarnarstarf og koma í veg fyrir að rusl berist í sjóinn.
 

Árangurinn í ár var framar vonum og á næsta ári er stefnt að því að taka enn stærra svæði fyrir og halda áfram þar sem frá var horfið.
 

Safnadagur að Hnjóti 12. júlí 2015

Safnadagur að Hnjóti 12. júlí 2015

Dagskrá:

14:00:   Messa í Sauðlauksdalskirkju.

15:00:   Kaffi á Minjasafninu að Hnjóti.

16:00:   Eyþór Eðvarðsson formaður Fornminjafélags Súgandafjarðar flytur fyrirlestur um starf félagsins og ástand strandminja á Vestfjörðum. Rannsóknir á fornminjum á Vestfjörðum hafa skilað áhugaverðum niðurstöðum, en ástand strandminja er áhyggjuefni. Merkilegar fornminjar eru að hverfa í sjóinn og verða horfnar eftir nokkur ár. Má þar nefna gamlar verstöðvaminjar, naust, varir, uppsátur og annað sem því tengist. Fornminjafélag Súgandafjarðar hefur staðið fyrir verkefnum sem tengjast þessum minjum, m.a. ráðstefnu í samstarfi við Minjastofnun, fésbókarsíðunni Áhugafólk um fornleifar á Vestfjörðum ofl.


Sjálfboðaliðar óskast í fjöruhreinsun á Rauðasandi, laugardaginn 4. Júlí!

Vesturbyggð, Umhverfisstofnun, Náttúrustofa Vestfjarða og landeigendur á Rauðasandi ætla að standa fyrir fjöruhreinsun á Rauðasandi í Vesturbyggð laugardaginn 4. júlí frá kl. 10:00 – 15:00. Hreinsunin fer fram á austurhluta Rauðsands við bæinn Melanes,  Þetta er fyrsti áfangi í hreinsun strandlengjunnar á Rauðasandi sem verður framhaldið á næsta ári. Boðið verður upp á samlokur og drykki að verki loknu.
 

Þeir sem eru tilbúnir til að leggja hönd á plóg eru vinsamlegast beðnir að skrá sig í síma 822-4019 eða senda póst á netfangið hakon@ust.is fyrir föstudaginn 3. Júlí. Mæting er við Félagsheimilið á Patreksfirði, kl. 10:00 þar sem sameinast verður í bíla eða á Melanesi kl. 10:40.

 

Vonumst til að sjá sem flesta

Eldri færslur
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Vefumsjón