Sveitarstjórnarfundur
484. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, miðvikudaginn 29. apríl 2015 og hefst kl. 17:00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)
Sveitarstjóri
484. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, miðvikudaginn 29. apríl 2015 og hefst kl. 17:00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)
Sveitarstjóri
Starfskraftur óskast til þess að hafa yfirumsjón og verkstjórn með vinnuskóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2015 er stendur frá 8.júní til og með 17.júlí.
Menntunar- og hæfniskröfur :
Starfsfólk óskast til þess að sinna umhirðu grænna svæða og minniháttar viðhaldsverkum s.s. málningarvinnu. Laus eru til umsóknar fjögur 100 % stöðugildi, vinnutími frá kl. 8 – 12 og 13 – 17.
Vinnuskóli Tálknafjarðarhrepps hefst mánudaginn 8.júní og stendur til fimmtudagsins 16.júlí. Helstu verkefni skólans varða snyrtingu og fegrun bæjarins. Þeir sem geta sótt um í vinnuskólanum eru börn fædd á árunum 1999 – 2001. Reglur og skilmálar eru aðgengileg á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps sem og umsóknareyðublöð starfsumsókn og sérstök umsókn um vinnuskóla.
Nánari upplýsingar m.a. um launakjör veitir sveitarstjóri skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, í síma 456-2539 og netfang talknafjordur@talknafjordur.is
Umsóknareyðublöð starfsumsókn og umsókn um vinnuskóla eru aðgengileg á skrifstofu og neðst á heimasíðu sveitarfélagsins talknafjordur.is
Forstöðumaður áhaldahúss
Héraðsþing HHF verður haldið á Hópinu á Tálknafirði miðvikudaginn 29.apríl 2015 og hefst kl. 18. Öllum er frjálst að mæta á þingið og eru allir íbúar í V-Barðastrandarsýslu hvattir til að mæta og taka þátt í uppbyggingu á íþróttamenningu á svæðinu.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður nýr íþróttafulltrúi kynntur til starfa auk þess að mótaskrá sumarsins verður samþykkt.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Lilja Sigurðardóttir, Formaður HHF
483. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, miðvikudaginn 22. apríl 2015 og hefst kl. 17:00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)
Sveitarstjóri
Vestfjarðavíkingurinn verður sýndur á RÚV, fimmtudaginn 23. apríl kl. 19:35.
Þáttur þátt um keppni aflraunamanna á Vestfjörðum. Þar tókust sterkustu menn Íslands á við fjölbreyttar þrautir eins og gert hefur verið í Vestfjarðavíkingi í tvo áratugi. Í þættinum er fylgst með átökunum, og ýmsu því sem fyrir augu bar á Vestfjörðum á meðan á keppninni stóð. http://www.ruv.is/dagskra
Vegna breytinga og endurbóta á ekjubrú ferjunnar í Stykkishólmi verða felldar niður 3 ferðir í áætlun skipsins, Stykkishólmur – Flatey – Brjánslækur, sem hér segir .: mánudagur 20. apríl , þriðjudagur 21. apríl og miðvikudagur 22 apríl.
Farin verður hugsanlega aukaferð í Flatey frá Stykkishólmi þriðjudaginn 21. Apríl. Ferðin verður þó eingöngu farin ef veður leyfir og farþegar þurfa að komast til eða frá Flatey. Þess vegna er nauðsynlegt að bóka far í síma 433 2253 eða á meili: seatours@seatours.is
Eingöngu er farið með farþega og minniháttar flutning. Brottför verður þá frá Stykkishólmi kl 15:00 og frá Flatey kl 17:00.
Siglingar Baldurs hefst síðan aftur fimmtudaginn 23 apríl samkvæmt áætlun.
Nánari upplýsingar hjá Sæferðum ehf. sími 433 2254.
Starfsfólk Sæferða