A A A

Talknafjarðarhreppur verður með i Útsvari

RUV hefur haft samband við sveitarstjora og tilkynnt að Talknafjarðarhrepp standi til boða að taka þátt i Útsvari i sjónvarpinu á komandi vetri.

Uppfært 12. ágúst:
Sveitarstjóri óskar eftir tilnefningum í lið Tálknafjarðarhrepps í Útsvar á komandi vetri. Vinsamlega hafið samband við skrifstofu ef þið eruð með einhverjar tilnefningar. Það þarf að skila inn nöfnum á keppendum í útsvar í lok þessarar viku.

Lokað fyrir vatnið, fimmtudaginn 1. ágúst

Lokað verður fyrir vatnið á morgun fimmtudaginn 1. ágúst vegna viðgerða á neysluvatnlögn. Lokunin stendur frá kl. 8:00 og frameftir degi. Lokunin nær yfir Miðtún, Bugatún og Strandgötu að hluta. (Standgata milli Hrafnadalsvegar og Lækjargötu)

Guðni, sími: 869-0918

Vinningalisti í happdrætti Björgunarsveitarinnar Tálkna

Björgunarsveitin Tálkni þakkar öllum þeim sem gáfu vinninga í happdrættið og ekki síður öllum þeim sem keyptu miða hjá okkur.

Kærar þakkir fyrir frábæran stuðning.

 

Vinninga skal vitja hjá Lilju Magnúsdóttur í síma 895-2947,
netfang: liljam@centrum.is
 
Hér má skoða lista yfir vinninga í happdrætti Björgunarsveitarinnar Tálkna, Tálknafirði 2013:  Vinningaskrá (.pdf)

Barnastund með landverði

Í tilefni afmælishátíðar Safnsins á Hnjóti ætla landverðir að taka á móti krökkum sunnudaginn 28. júlí kl. 15:00 og kynna þeim starf sitt, fræða þá um náttúruna og fara í skemmtilega leiki. Farið verðu út að skoða náttúruna og er því mælst til að allir klæði sig eftir veðri. Foreldrar eru hvattir til að vera með! Gert er ráð fyrir að vera í eina klukkutund.

Hlökkum til að sjá ykkur
Landverðir

Fréttatilkynning frá ATVEST

ATVEST hefur ráðið til sín verkefnastjóra, Ingibjörgu Snorradóttur í sumar til að sinna hinum ýmsu verkefnum. Eitt af stóru verkefnunum er Íbúakönnun, sem margir hafa séð bregða fyrir á vefnum og má finna hér. Markmið með Íbúakönnun er að safna saman netföngum frá öllum vestfjörðum og er stefnt á að fá um 10% íbúa í hverju sveitarfélagi til að skrá sig og taka þátt.

...
Meira

Afmælishátíð Minjasafns Egils Ólafssonar

Kumlið í Vatnsdal – Bjarni F. Einarsson
Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur segir frá kumlinu í Vatnsdal (í Patreksfirði),

laugardaginn 13. júlí kl. 15:00.

Gengið verður um uppgraftarsvæðið og sagt frá kumlinu sem fannst í Vatnsdal árið 1964.

 

Mæting í Vatnsdal (í Patreksfirði) kl. 15:00

 

Vonumst til að sjá sem flesta.

 

Minjasafn Egils Ólafssonar

Sími: 456-1511

museum@hnjotur.is

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón