A A A

Vinna við samein­ingu - upplýs­inga­gjöf til íbúa

Undan­farna vikur og mánuði hefur ýmiss vinna verið í gangi sem miða að því að sameining Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps muni ganga sem best. Kosið var um samein­inguna í íbúa­kosn­ingum sem lauk 28. október sl. þar sem afger­andi meiri­hluti íbúa kaus með samein­ing­unni. Í þessari saman­tekt hafa verið teknar saman upplýs­ingar um hvaða vinna er búin að vera í gangi undarfarnar vikur vegna samein­ing­ar­innar og hvað sé framundan.

 

Skipuð var sex manna undirbúningsstjórn um sameininguna í lok árs 2023. Hún er skipuð þremur fulltrúum Vesturbyggðar og þremur fulltrúum Tálknafjarðarhrepps. Þeir sem skipa undirbúningsstjórnina eru þau Jón Árnason (formaður), Þórkatla Soffía Ólafsdóttir og Guðrún Eggertsdóttir fyrir Vesturbyggð og Lilja Magnúsdóttir (varaformaður), Jenný Lára Magnadóttir og Jóhann Örn Hreiðarsson fyrir Tálknafjarðarhrepp. Með stjórninni starfa bæjarstjóri Vesturbyggðar, Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps, Ólafur Þór Ólafsson og sviðsstjóri fjármála,- og stjórnsýslusviðs Vesturbyggðar, Gerður Björk Sveinsdóttir og hefur hún verið skipuð verkefnastjóri sameiningarvinnunnar af undirbúningsstjórn.

 

Helstu verkefni undirbúningsstjórnar eru m.a.

  • Vinna nýja samþykkt um stjórn og fundarsköp
  • Ákveða kjördag og gildistöku sameiningar
  • Hefja vinnu við val á nýju nafn, bæjarmerki
  • Fá staðfestingu ráðuneytis svo sameiningin geti átt sér stað
  • Ásamt mörgum fleiri verkefnum sem unnin verða bæði af undirbúningsstjórn og starfsmönnum sveitarfélaganna.

 

Vinnufundur 1. febrúar

Haldinn var sameiginlegur vinnufundur 1. febrúar síðastliðinn þar sem kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna ásamt ákveðnum starfsmönnum komu saman til þess að ræða samþykktir sameinaðs sveitarfélags. Ræddar voru hugmyndir að nefndarskipan, verkefni heimastjórna og skipurit sveitarfélagsins. Var afrakstur vinnunnar hugsaður sem afurð inn í vinnu undirbúningsstjórnar og verða niðurstöðurnar hafðar til hliðsjónar við vinnu við samþykktir sameinað sveitarfélags.

 

Kjördagur, dagur sameiningar og heimastjórnir

Kosið verður til sameiginlegrar sveitarstjórnar 4. maí næstkomandi og mun sameiningin taka gildi 15. dögum síðar eða 19. maí. Ný sveitarstjórn mun hafa tvær vikur frá sameiningardegi til að koma saman til fyrsta fundar. Kosið verður í heimastjórnir sama dag og kosið verður til sveitarstjórnar og eru tveir fulltrúar kosnir á hverjum stað en það verða fjórar heimastjórnir. Á Patreksfirði, Bíldudal, Tálknafirði og Barðaströnd og gamla Rauðasandshreppi. Allir íbúar hvers svæðis eru í framboði og kýs hver íbúi einn einstakling á því svæði sem hann býr. Þeir tveir sem fá flest atkvæði á hverju svæði munu sitja í heimastjórn fyrir sitt svæði næstu tvö árin eða þar til kosið verður næst til sveitarstjórnar.

 

Nafn og kennitala á sameinuðu sveitarfélagi

Á fundi undirbúningsstjórnar sem haldin var 7. febrúar sl. var ákveðið að hefja ferli við val á nafn á sameinað sveitarfélag. Byrjað verður á því að kalla eftir tillögum frá íbúum um nafn á sameinað sveitarfélag og í framhaldi af því verða tillögur sendar til örnefnanefndar til umsagnar.

 

Á þriðja fundi undirbúningsstjórnar var samþykkt að nýtt sveitarfélag muni bera núverandi kennitölu Vesturbyggðar. Er það gert til að einfalda framkvæmdsameiningar, en með þessum hætti er dregið úr vinnu og kostnaði um leið og komið er í veg fyrir óþarfa flækjur.

 

Samningur við KPMG

Samið var við KPMG um þjónustu við undirbúning sameiningarinnar en KPMG hefur verið ráðgefandi hjá báðum sveitarfélögunum í öllu ferlinu ásamt því að hafa komið að fleiri sameiningum. Það er því mikill fengur fyrir okkur að fá þau að þessu verkefni.

 

Upplýsingakerfin, samningar og heimasíður

Þessa dagana er vinna að hefjast við ýmis praktísk mál eins og fjárhagskerfi sveitarfélaganna, launakerfi, skjalakerfi ofl.

 

Vinna er hafin við yfirferð á heimasíðum sveitarfélaganna en byggt verður á heimasíðu Vesturbyggðar, gera má ráð fyrir einhverjum breytingum á síðunni.

 

Verið er að fara yrir samninga sem í gildi eru og samræma og segja upp því sem segja þarf upp tímanlega til að komast hjá óþarfa kostnaði.

 

Gerður Björk Sveinsdóttir

sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Vesturbyggðar og verkefnastjóri sameiningar

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón