Smáskipanám á Patreksfirði
Ef næg þátttaka fæst er fyrirhugað að halda réttindanámskeiðið Smáskipanám á Patreksfirði í desember og janúar. Fyrirhugað er að byrja mánudaginn 5. desember 2011 og lýkur námskeiðinu í janúar 2012.
Kennslutími verður utan hefðbundins vinnutíma.
Kennari: Magnús Jónsson.
Verð kr: 117.000 - (Athugið endurgreiðslu úr stafsmenntasjóðum)
Staður: Þekkingarsetrið Skor
Fjöldi kennslustunda: 105
Lýsing:
Sá sem lokið hefur námi þessu, sem er samkvæmt reglugerð nr. 175 frá 2008 um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum hefur öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem skipstjóri/stýrimaður á skipum styttri en 12 metrar að skráningarlengd í strandsiglingum, eftir 12 mánaða siglingatíma (smáskipaskírteini).
Á námskeiðinu verða kennd bókleg atriði sem krafist er samkvæmt reglugerð: Siglingafræði og samlíkir, siglingareglur og vélfræði, siglinga- og fiskileitartæki, sjóhæfni, veðurfræði og öryggismál. Þeir sem ljúka smáskipaprófi geta tekið verklegt próf og öðlast þar með einnig skemmtibátaréttindi á 24 metra skemmtibáta. Námið er kennt með faglegri ábyrgð Skipstjórnarskóla Tækniskólans.
Þátttakendur þurfa að útvega sér samsíðung, hringfara (sirkill) og reglustiku, almenn ritföng og glósubók. Önnur námsgögn eru innifalin í verðinu.
Hér er linkur á námskeiðið Smáskipanám og þú getur skráð þig þar.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 609. fundur 14. mars 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 40. fundur 8. mars 2023
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 8. fundur 7. mars 2023
- Velferðarráð V-Barð | 45. fundur Velferðarráðs V-Barð 9. febrúar 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 7. fundur 15. febrúar 2023
- Sjá allar fundargerðir