Opinn fræðslufundur um skólamál
Skólastarf er fjöregg hvers samfélags. Hjá Tálknafjarðarskóla er í gangi vinna við skólastefnu, skólaþing var haldið og miðar vel og verður stefnan kynnt á næsta fundi skólaráðs. Þá þykir við hæfi að líta í kringum sig og sjá hvað aðrir skólar eru að gera. Það er okkur ánægjuefni að bjóða velkomna til okkar góða gesti frá Hjallastefnunni.
Hér með er boðað til opins fræðslufundar um skólamál
miðvikudagskvöld 25. apríl 2012 kl. 20 í Dunhaga.
Gestir fundarins eru Margrét Pála Ólafsdóttir fræðslustjóri og Áslaug Hulda Jónsdóttir framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar.
Dagskrá:
1. Kynning skólastjóra
2. Kynning á Hjallastefnunni - Margrét Pála Ólafsdóttir
3. Fyrirspurnir og almennar umræður
Við hvetjum alla sem láta sig skólamál og samfélagið í heild sig varða að mæta til fundarins og eiga góða kvöldstund með skemmtilegu fólki. Boðið verður upp á kaffi.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 609. fundur 14. mars 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 40. fundur 8. mars 2023
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 8. fundur 7. mars 2023
- Velferðarráð V-Barð | 45. fundur Velferðarráðs V-Barð 9. febrúar 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 7. fundur 15. febrúar 2023
- Sjá allar fundargerðir