Eldvarnareftirlit að störfum
Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð hafa gert samning við Brunavarnir Suðurnesja um að sinna eldvarnareftirliti á þjónustusvæði sveitarfélaganna til ársloka 2024. Með samningnum er áætlað að reglubundnu eftirliti sé haldið uppi í samræmi við lög um brunavarnir.
Á næstunni mun eldvarnareftirlitið vera hjá okkur að sinna eldvarnareftirlitinu hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu í samræmi við brunavarnaráætlun sveitarfélaganna.
Við biðjum ykkur því að láta ykkur ekki bregða ef þið sjáið aðila merktan Brunavörnum Suðurnesja, þau eru ekki að villast.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sveitarstjórn | 635. fundur sveitarstjórnar 23. apríl 2024
- Sveitarstjórn | 634. fundur sveitarstjórnar 9. apríl 2024
- Sjá allar fundargerðir