A A A

Sumarstörf - Yfir­flokk­sstjóri og flokks­stjóri hjá vinnu­skóla

Tálknafjarðarhreppur leitar að einstak­lingum til starfa hjá vinnu­skóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. 

 

Yfirflokksstjóri 

Tálknafjarðarhreppur leitar eftir kröftugum, áhugasömum, skipulögðum og skemmtilegum einstaklingi til að starfa í vinnuskóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. 

Um er að ræða 100% sumarstarf sem hentar öllum kynjum. 

Í starfinu felst að skipuleggja sumarstarfið í samstarfi við áhaldahús og tómstundafulltrúa, leiðbeina ungmennum og vera í samskiptum við foreldra barna og unglinga. 


Flokkstjórar 

Tálknafjarðarhreppur óskar eftir að ráða einstaklinga sem eiga gott að vinna með öðrum, hafa frumkvæði, eru góðar fyrirmyndir, stundvísir, metnaðarfullir og samviskusamir. Starf flokkstjóra felst í að vinna með ungmennum. 

  

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2024 

Um er að ræða sumarstörf og  eru laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Tálknafjarðarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 

Frekari upplýsingar gefur Hafdís Helga Bjarnadóttir tómstundafulltrúi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps í síma 787 4175 og á netfanginu hafdishelga@vesturbyggd.is og tekur hún einnig á móti umsóknum. Áhugasamir einstaklingar sem uppfylla hæfniskröfur eru hvattir til að sækja um.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón