Á Tálknafirði hefur verið starfræktur tónlistarskóli um árabil og er hann nú hluti Tálknafjarðarskóla og hefur aðsetur í grunnskólabyggingunni. Hann tekur til starfa miðvikudaginn 1. september og verður kennsla með áþekku sniði og verið hefur. Elstu börn leikskóladeildar eiga kost á að sækja forskóla í tónlist og nemendum grunnskólans stendur til boða píanó-, blokkflautu og tónfræðinám samkvæmt námskrá tónlistarskóla. Nú er leitað leiða til að styrkja starfsemi tónlistardeildarinnar og auka námsframboð frá og með næsta ári.
Tónlistarkennari er Marion G. Worthmann
Sími: 895 7341
Netfang: marion (hjá) talknafjordur.is