Heimilissorp
Heimilissorp er skilgreint sem allt sorp frá heimilum í þéttbýli og skal flokkast í brennanlegt og óbrennanlegt. Þá mælist Tálknafjarðarhreppur til þess að íbúar flokki einnig lífrænt sorp til vinnslu í moltu. Hver sorpflokkur flokkast í þar til gerða poka og tunnur. Hreinsun brennanlegs og lífræns sorps fer fram einu sinni í viku á þriðjudögum, og óbrennanlegt sorp skal hreinsað tvisvar sinnum í mánuði. Ef hreinsunardag ber upp á helgidag skal hreinsað næsta virka dag þar á eftir.
Fyrirtækjasorp
Móttaka fyrirtækjasorps er á gámasvæði sem staðsett er fyrir ofan smábátahöfnina og skal flokkast í gáma sem merktir eru hverjum flokki fyrir sig.
Ef upplýsinga er óskað, vinsamlega hafið samband við Friðrik í áhaldahúsi í GSM: 661-5707 eða við skrifstofu Tálknafjarðarhrepps í s. 456-2539.