Samkomuhúsið Dunhagi
Húsið Dunhagi var byggt sem stúkuhús árið 1933 af stúkunni Geisla og var aðalhvatamaður að byggingunni Guðmundur Sveinsson stúkuformaður og skógræktarfrömuður á Eyrarhúsum í Tálknafirði. Skólahús var fyrir á staðnum og sundlaug, byggð 1931. Forsmiður var Gestur Gestsson, kennari á Patreksfirði, ættaður úr Flatey. Smiðurinn var ráðinn á launum en allir aðrir sem að byggingunni komu unnu í sjálfboðavinnu. Fyrir utan samkomur og fundi var húsið nýtt sem heimavist í sambandi við sundkennslu barna frá Patreksfirði og Arnarfirði og var þá ráðskona á staðnum. Snemma var byggt við austurgafl hússins og var eldhús á neðri hæð viðbyggingarinnar og bókasafn verkalýðsfélagsins á efri hæð en verkalýðsfélagið hafði aðstöðu í húsinu. Á tímabili var búið á neðri hæð hússins. Eftir að stúkan lagðist af eignaðist sveitarfélagið húsið.

Árið 1960 var húsið komið í mikla niðurníðslu og árið 1962 hafði Steinunn Finnbogadóttir forgöngu um stofnun Kvenfélagsins Hörpu sem hafði það að aðalmarkmiði að kaupa húsið, gera það upp og nýta það fyrir fundi og aðrar samkomur. Kvenfélagið innréttaði sal á neðri hæð og bætti eldhúsaðstöðu í viðbyggingu. Allt starf Kvenfélagsins sem viðkom húsinu var unnið í sjálfboðavinnu og er svo enn. Húsið var eina samkomuhúsið í sveitarfélaginu í áratugi, allt þar til Íþróttahúsið var tekið í notkun árið 1991.

Nú er húsið nýtt fyrir ýmsa smærri fundi, markaði, sýningar, námskeið og tónleika. Öll starfsemi Kvenfélagsins fer fram í húsinu. Einnig er húsið leigt út fyrir brúðkaup, fermingar, stórafmæli og aðrar veislur.

Vegna leigu á húsinu má hafa samband í síma 456-2582, 456-2541 eða GSM 893-7641.



Tálknafjarðarhreppur - Kt. 640269-6779 - Miðtúni 1 - 460 Tálknafirði
Sími: 456 2539 - Fax: 456 2589 - Netfang: talknafjordur (hjá) talknafjordur.is