Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa, að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Veita skal íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Aðstoð og þjónusta skal jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf.
Félagsleg þjónusta í Tálknafjarðarhreppi er veitt í samræmi við
lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 barnaverndarlög nr.80/2002
lög um málefni aldraðra nr. 125/1999
lög um málefni fatlaðra nr. 40/1991
lög um húsnæðismál nr. 44/1998
lög um húsaleigubætur nr. 138/1997
og önnur lög eftir því sem við á hverju sinni.
Félagsmála- og barnaverndarnefnd fara með málefni félagsþjónustu í umboði hreppsnefndar. Formaður Félagsmálaráðs Tálknafjarðarhrepps er Ásdís E. Auðunsdóttir, netfang asdis(hjá)talknafjordur.is
Þagnarskylda
Fulltrúar félagsmála- og barnaverndarnefndar og starfsmenn félagsþjónustu eru bundnir þagnarskyldu um einkamál þeirra sem njóta þjónustunnar. Þagnarskyldan helst þrátt fyrir að viðkomandi láti af störfum.