Tónlistarhátíðin Við Djúpið fær hæsta styrkinn
Menningarráð Vestfjarða hefur lokið vinnu við að fara yfir styrkumsóknir vegna seinni úthlutunar ráðsins árið 2011 og ákvörðun um framlög til einstakra menningarverkefna liggur fyrir. Veitt eru framlög til 37 verkefna, samtals að upphæð 12.350.000.- Styrkirnir eru á bilinu 100 þúsund til 1,2 milljónir, en það var tónlistarhátíðin Við Djúpið sem fékk hæsta styrkinn að þessu sinni. Alls bárust 85 umsóknir og eins og venjulega var í þeim hópi mikill fjöldi góðra umsókna og spennandi verkefna.
...Meira