A A A

Verslunin Fjölval á Patreksfirði

Jólatilboð Fjölvals
Jólatilboð Fjölvals
1 af 2

Um leið og við kynnum jólatilboðin okkar nú fyrir hátíðarnar samkvæmt meðfylgjandi auglýsingu, viljum við vekja athygli á að frá og með mánudeginum12. desember verður verslunin opin til kl. 20.oo alla virka daga.  Taki viðskiptavinir almennt vel í þennan opnunartíma og nýta sér hann kemur til greina að lengja hann einnig um helgar, en fyrst um sinn verður opið frá 11.oo til 16.oo um helgar eins og verið hefur.

...
Meira

Jólatré og greni

Jólatré og greni verða seld á Friðþjófstorgi næstkomandi laugardag
 

10. DESEMBER

FRÁ KLUKKAN 14-16.

LIONSKLÚBBUR PATREKSFJARÐAR.

Kvikmyndaklúbburinn Kittý – fréttatilkynning

Þann 6. desember síðastliðinn var haldinn formlegur stofnfundur kvikmyndaklúbbs á Patreksfirði. Fundurinn var haldinn í Skjaldborgarbíói sem verður helsta vígi klúbbsins og eru stofnfélagar hátt í tuttugu talsins.  


Klúbburinn hlaut nafnið Kvikmyndaklúbburinn Kittý.

...
Meira

Vegagerðin bakkar ekki með Vestfjarðaveg

Frá Kjálkafirði á sunnanverðum Vestfjörðum.
Frá Kjálkafirði á sunnanverðum Vestfjörðum.

Vegagerðin hyggst ótrauð bjóða út endurbyggingu Vestfjarðavegar í næsta mánuði, með þverun tveggja fjarða, þrátt fyrir að Skipulagsstofnun telji verkið valda óbætanlegum skaða á landslagi.

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að þetta álit Skipulagsstofnunar raski ekki þeim áformum að bjóða verkið út í janúar og að Vegagerðin muni halda sínu striki og sækja um framkvæmdaleyfi til Vesturbyggðar og Reykhólahrepps.

...
Meira

Segir álit Skipulagsstofnunar reginhneyksli

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi.

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, segir álit Skipulagsstofnunar um Vestfjarðaveg reginhneyksli og segir tíma til kominn að opinberar stofnanir taki tillit til þarfa fólksins, sem þarf að búa við vegina.

Skipulagsstofnun hefur lýst því áliti sínu að fyrirhugaðar endurbætur á þjóðveginum um Kjálkafjörð og Kerlingarfjörð á sunnanverðum Vestfjörðum valdi óbætanlegum skaða á landslagi. Einar segir að heiðarlegast hefði verið af stofnuninni að segja Vestfirðingum að nota bara gömlu troðningana, en ekki leggja neinn nýjan veg, - kannski að leyfa að sturtað yrði nokkrum malarhlössum í verstu holurnar.

...
Meira

Jólatónleikar

Karlakórinn Vestri býður til jólatónleika í Bíldudalskirkju, föstudaginn 9. desember nk. kl. 20:00.
Laugardaginn 10. desember nk. á Birkimel á Barðaströnd kl. 14.00 og í Patreksfjarðarkirkju kl. 17:00

...
Meira
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón