A A A

Skólaakstur í framhaldsdeild FSN á Patreksfirði

Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Fjölbrautaskóli Snæfellinga og sveitarfélagið Vesturbyggð óska eftir tilboði í skólaakstur fyrir nemendur framhaldsdeildar FSN á Patreksfirði og Bíldudalsskóla skólaárin 2012-2014.

Tilboð óskast send til Jóns Eggerts Bragasonar, skólameistara, á netfangið joneggert@fsn.is og afrit til Þóris Sveinssonar, skrifstofustjóra Vesturbyggðar, á netfangið thorir@vesturbyggd.is eða í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfjörður. Frestur til að skila inn tilboðum er til 27. júní 2012. Fyrsti skóladagur haustannar er 22. ágúst og fyrsta ferð í Grundarfjörð er áætluð 27. ágúst til 31. ágúst. Frekari upplýsingar gefur skólameistari í síma 430 8400.

...
Meira

Kynningarfundur Matís á sunnanverðum Vestfjörðum

Mánudaginn 18. júní kl. 17.00 verður haldinn kynningarfundur á starfsemi Matís í félagsheimilinu á Bíldudal.


Sérfræðingar frá Matís í Reykjavík, Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum verða á staðnum til að kynna starfsemi Matís og þá möguleika sem felast í opnun starfsstöðvar Matís á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi.


Allir sem áhuga hafa eru boðnir velkomnir á fundinn til að kynna sér starfsemi Matís og hvaða möguleikar eru í boði á rannsóknum og aðstoð Matís við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.  Matís er þekkingar- og rannsóknafyrirtæki sem vinnur að þróun og nýsköpun i matvælaiðnaði, líftækni og matvælaöryggi. Matís veitir ráðgjöf og þjónustu til fyrirtækja í sjávarútvegi og landbúnaði, sem og íslenska ríkinu. Sem dæmi kemur Matís að þróun á nýjum vörum og ferlum fyrir fyrirtæki og hefur mikilvægu hlutverki að gegna varðandi gæði og öryggi matvæla.

...
Meira

Auglýsing: fundur í hreppsnefnd

443. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps  verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, miðvikudaginn 13. júní 2012 og hefst kl. 17:00.

 

Sjá fundarboð hér.

Verkefnastyrkir Menningarráðs Vestfjarða 2012

Vordagur
Vordagur

Menningarráð Vestfjarða hefur lokið vinnu við að fara yfir styrkumsóknir vegna úthlutunar ráðsins á verkefnastyrkjum árið 2012 og ákvörðun um framlög til einstakra menningarverkefna liggur fyrir. Úthlutanir ráðsins byggjast á úthlutunarreglum sem samþykktar eru fyrir hverja úthlutun. Að þessu sinni eru veitt framlög til 33 verkefna, samtals að upphæð 19.130.000.- Áður hefur Menningarráð Vestfjarða úthlutað 11,4 milljónum í stofn- og rekstrarstyrki á þessu ári.  
 
Verkefnastyrkirnir eru á bilinu 90 þúsund til 1,5 milljón, en það var verkefni Minjasafnsins á Hnjóti sem ber yfirskriftina Björgunarafrekið við Látrabjarg sem fékk hæsta styrkinn að þessu sinni. Alls bárust 107 umsóknir og eins og venjulega var í þeim hópi mikill fjöldi góðra umsókna og spennandi verkefna.  
 
Menningarráð Vestfjarða þakkar kærlega fyrir allar umsóknir sem bárust og óskar umsækjendum öllum velfarnaðar í verkefnum sínum. Næst verður auglýst eftir umsóknum nálægt næstu áramótum. 

...
Meira

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennurum

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennurum fyrir skólaárið 2012-2013.

Danska                    50%  staða
Raungreinar            100% staða
Fél/Sag/Upp            100% staða

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

...
Meira

Vestnorræn vefsíða um jafnréttismál

Grænlendingar hafa ásamt norrænu ráðherranefndinni um jafnréttismál opnað vefsíðu um jafnrétti kynjanna í Grænlandi, Færeyjum og á Íslandi. Vefsíðan mun bjóða norrænum samtökum sem starfa að jafnréttismálum í þessum löndum upp á samskiptavettvang og aukin tækifæri til samvinnu.

...
Meira
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón