A A A

Jólin alls staðar, tónleikar á Tálknafiðri

Jólin alls staðar eru glænýjir jólatónleikar þar sem Regína Ósk fer fyrir fríðum hópi söngvara og hljóðfæraleikara. Með henni í för verða þau Guðrún Gunnars, Guðrún Árný og Jogvan ásamt hljómsveit og svo barnakórum frá hverjum stað.


Þau heimsækja 19 kirkjur hringinn í kringum landið með jólatónleika fyrir alla fjölskylduna. Ævintýrið byrjar í Ólafsvík 28. nóvember og ferðast tónleikarnir svo norður, austur, suður og vestur og enda svo í Grafarvogskirkju fimmtudagskvöldið 20. desember.


 


Tónleikarnir verða  í Tálknafjarðarkirkju fimmtudaginn 29. nóvember 2012 kl. 21:00.

...
Meira

Baldur siglir til Eyja

Baldur mun sigla á milli lands og Eyja á meðan Herjólfur fer í slipp vegna skemmda sem urðu á skipinu í hafnarmynni Landeyjahafnar um helgina.

...
Meira

Umsóknir um byggðakvóta fiskveiðiárið 2012/2013

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2012/2013


Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 628/2012 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013.


Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2012.

...
Meira

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennurum.

Danska            50%  staða
Félagsgreinar  50%  staða

Umsóknarfrestur er til 8. desember 2012.

...
Meira

Þrýstingstfall vegna viðgerðar á vatnslögn

Búast má við þrýstingsfalli á kaldavatnslögn í Túngötu og Móatúni á morgun 23. nóvember vegna viðgerðar á aðallögn. Viðgerðin hefst kl. 10:00 og mun standa fram eftir degi.

Guðni
Sími:869 0918

Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Tálknafjarðar 2006-2018 „afmörkun vatnsverndar, jarðborun og reiðleiðir í Tálknafirði

Hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 12. September 2012 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Tálknafjarðarhrepp.
 
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna afmörkunar á vatnsvernd, jarðborun og reiðleiðir. Skipulagsuppdrættir og greinargerð liggja frammi á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps Miðtúni 1, Tálknafirði og hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, Reykjavík frá 26. Nóvember 2012 til 16. janúar  2013. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. Janúar 2013. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps Miðtúni 1. Tálknafirði eða á netfangið armann@vesturbyggd.is merkt “Aðalskipulag Tálknafjarðar”. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.
 

Tálknafjörður 17. nóvember 2012
Ármann Halldórsson Byggingarfulltrúi

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón