A A A

Tilboð í niðurrif

1 af 2

Óskað er eftir tilboði í niðurrif á skemmu félagsins við Aðalstræti 98 á Patreksfirði.


Um er að ræða um 270  fermetra  járnklætt  timburhús að hluta klætt að innan með einangraða veggi.  Steypta grunnplötu og að hluta lágir sökklar í inn og útveggjum.  Að stórum hluta þá er byggingin einangruð með 4“og 5“ steinull sem er vel endurnýtanleg og í henni talsverð  verðmæti  og skal bjóðandi taka tillit til þess við verðlagningu verksins.

...
Meira

Aukaferð ferjunnar Baldurs

Föstudaginn 1. mars 2013 verður aukaferð með ferjunni Baldri auk hefðbundinnar áætlunnarferðar. Sem sagt 2 ferðir þann dag.

 

Frá Stykkishólmi     kl. 09:00 og aftur    kl 15:00.

Frá Brjánslæk          kl. 12:00 og aftur    kl 18:00.

 

Starfsfólk Sæferða ehf.

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum - frestur til 22. febrúar 2013

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú eftir umsóknum um styrki í tveimur flokkum á grundvelli menningarsamnings ríkisins við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli.

Sjá nánar á vefsíðu Menningarráðs Vestfjarða.
 

Súpufundur í Sjóræningjahúsinu

Súpufundur í  Sjóræningjahúsinu fimmtudaginn 21. febrúar, kl. 12:30.

 

Fyrirlesari dagsins er Haukur Már Sigurðarson.
 

Haukur Már kynnir verkefnið Staparnir – ljóðlistaverk, og býður um leið til stofnfundar vinnuhóps um verkefnið. Farið verður yfir stöðu verkefnisins í dag, sagt frá því sem búið er að vinna og hvað er framundan.
 

Sýnd verða drög að fyrsta skiltinu og kynnt staðsetning og framsetning annarra skilta.
 

Allir sem hafa áhuga á að koma að verkefninu á einhvern hátt eru hvattir til að mæta. Stjórnir félagasamtaka, forstöðumenn fyrirtækja og stofnana sem og sveitstjórnarfólk eru sérstaklega hvattir til að koma og kynna sér verkefnið.

 

Súpa, brauð og kaffi  1.200 kr.

Auglýsing: fundur í hreppsnefnd

451. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að

Miðtúni 1, Tálknafirði, þriðjudaginn 19. febrúar 2013 og hefst kl. 17:00.

 

Sjá auglýsingu hér.

Frestun á fundi hreppsnefndar

451.fundur sem halda átti miðvikudaginn 13.febrúar 2013 er frestað, til þriðjudagsins 19.febrúar 2013. 


Oddviti.

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón