A A A

Aðalfundarboð

Ferðamálafélag V-Barð boðar til aðalfundar þann 13.apríl 2013, kl. 11:00 í Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal.

...
Meira

Páskaopnun Íþróttahúss og sundlaugar

Páskaopnun Íþróttahúss og sundlaugar verður með eftirfarandi hætti:

 

Skírdagur                              kl. 13.00 – 17.00

Föstudagurinn langi                       LOKAÐ

Laugardagur 30.mars              kl. 13.00 – 17.00

Páskadagur                                  LOKAÐ

Annar í páskum                     kl. 13.00 – 17.00

Svæðisbundin flutningsjöfnun

Styrksvæði flutningsjöfnunarstyrkja
Styrksvæði flutningsjöfnunarstyrkja

Umsóknarfrestur vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar rennur út 31. mars nk.

Sjá nánar: byggdastofnun.is

Veggspjaldasýning um Stein Emilsson jarðfræðing 2013

Með skráningu jarðfræðisafns Steins Emilssonar árið 2007 kom upp sú hugmynd að sýna og fræða fólk um líf og verk þessa athafnamanns (1893-1975) sem m.a var skólastjóri í Bolungarvík og ritstjóri tímaritsins „Vesturlands“.

Á veggspjaldasýningunni er m.a. fjallað um jarðvegsrannsóknir Steins á Íslandi sem hann borgaði yfirleitt úr eigin vösum, um tillögur hans um jarðfræði Íslands og áhrif verkefna hans á vísindin og þjóðfélagið. Steinn Emilsson, jarðfræðingur (Ársrit Sögufélags Ísfirðinga 1999).
 

Stuðst var við greinar sem hann samdi sjálfur og hafa verið skrifaðar um hann en ekki síður Steina- og jarðfræðisafnið hans og dagbækur sem erfingjar Steins afhentu Náttúrugripasafni Bolungarvíkur árið 1998. Sýningin er farandssýning sem sýnd er bæði í skólum og söfnum á Vestfjörðum.

Sýningin var fyrst sett upp í Náttúrugripasafni Bolungarvíkur.
 

Sýningin er nú uppsett í anddyri Skorar þekkingarseturs á Patreksfirði og er opin virka daga á opnunartíma setursins næstu vikur.

Sundlaugin lokuð vegna jarðarfarar

Vegna útfarar Unnar Torfadóttur frá Eysteinseyri sem vera á laugardaginn 23.mars n.k lokar íþróttahús og sundlaug klukkan 15:00 þann dag.

 

Umsjónarkona

Sumarstörf á Minjasafni Egils Ólafssonar

Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn auglýsir eftir sumarstarfsmönnum til starfa á safninu sumarið 2013.

Helstu verkefni starfsmanna er að leiðsegja gestum um safnið, afgreiðsla í kaffiteríu, þrif og ýmiss tilfallandi verkefni.

Atvinnuumsókn skal skilað fyrir 15. apríl

...
Meira
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón