Lóðamál í Tálknafirði
Í Tálknafjarðarhreppi er mikið um að lóðaleigusamningar við hreppinn séu útrunnir. Einnig vantar heildarmynd á lóðafyrirkomulag í þorpinu til þess að hægt sé að deiliskipuleggja. Vegna þessa hafa verið unnin drög að nýjum lóðablöðum fyrir þorpið fyrir endurnýjun lóðaleigusamninga. Í einhverjum tilfellum geta stærðir og lega á lóðum breyst frá því sem var í gömlum samningum. Þess vegna hvetjum við íbúa að taka þátt í mótun sinna lóða og hafa samband við byggingarfulltrúa á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps Miðtúni 1 milli kl 13:00 og 15:00 þann 11. og 18. apríl nk.
Drög að lóðafyrirkomulagi má finna á vef Tálknafjarðar og hjá byggingarfulltrúa á ofangreindum tímum.
Sjá nánar: Drög að lóðalegu (.pdf)
Ármann Halldórsson
Skipulags –og byggingarfulltrúi