A A A

Samstarf félagsþjónustu og framhaldsdeildar

Félagsþjónusta Vestur – Barðastrandasýslu og Framhaldsskólinn á Snæfellsnesi eru að hefja áhugavert samstarf, einskonar Mentor verkefni.


Verkefnið byggist upp á því að nemandi í framhaldsskóladeildinni á Patreksfirði heimsækir  eldri borgara sem hefur áhuga á að taka þátt í verkefninu. Íbúum á Patreksfirði, Tálkafirði og Bíldudal sem eru orðinir 70 ára er boðið að taka þátt í verkefninu.  Ekki verður hægt að bjóða upp á þetta samstarf í sveitum  sveitarfélagsins að þessu sinni og markast það af búsetu nemenda sem sækja framhaldsdeildina.

...
Meira

Eyrarhús til sölu

Tálknafjarðarhreppur auglýsir til sölu fasteignina, Eyrarhús, fmr nr 212-4242. Um er að ræða einbýlishús,  um 181,6 m². Fasteignin stendur á eignarlóð sem er 1110 m² að stærð.
 

Húsið selst í núverandi ástandi. Áhugasömum er bent á að hafa samband við sveitartjóra í síma 456-2539.

Kirkjuskólinn byrjar 7. September

Kirkjuskólinn hefst laugardaginn 7. September Í Tálknafjarðarkirkju, kl.11:00.

 

Kirkjuskólinn á verður á laugardögum fram að aðventu, frá kl. 11:00 til 12:00.

Bestu kveðjur,
Sr. María

Auglýsing á tillögu að Nýtingaráætlun strandsvæðis Arnarfjarðar 2012-2024

Ísafjarðarbær, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð hafa samþykkt að auglýsa tillögu að Nýtingaráætlun strandsvæðis Arnarfjarðar 2012-2024 ásamt umhverfisskýrslu. Þar er m.a. fjallað um nýtingu fjarðarins, þ.e.a.s. á svæði sem afmarkast af línu sem liggur 115 m frá stórstraumsfjöruborði og línu sem liggur 1 sjómílu utan við grunnlínu landhelginnar. Áætlunin er ekki lögformleg skipulagsáætlun en við gerð hennar hafa verkferlar svæðisskipulags verið hafðir til hliðsjónar.

Sjá nánar á heimasíðu Fjórðungssambands Vestfirðinga

Sundlaugin lokuð tímabundið

Vegna rennslismælinga á borholu við „Pollinn“ þá verður sundlaugin lokuð frá og með 30. Ágúst, til og með fimmtudagsins 5. september.
 

Íþróttahúsið verður opið fyrir fasta tíma frá kl 16.00 til 19.00, eða í samráði við forstöðumann sundlaugar.  Sturtuaðstaða verður ekki til staðar á þessum tíma í íþróttahúsi.
 

Einnig verður „Pollurinn „ lokaður a.m.k fram á n.k mánudag.

Nánari upplýsingar um opnunartíma íþróttahúss eru veittar í hjá forstöðumanni sundlaugar í síma 456-2639.

 

sveitarstjóri

Innsetningarmessa

Sunnudaginn 1. September nk. kl. 11:00, verður María Guðrún Gunnlaugsdóttir sett í embætti í Tálknafjarðarkirkju.
 

Allir hjartanlega velkomnir.

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón