A A A

Starfsfólk vantar

Íslenska kalkþörungafélagið leitar að duglegum og jákvæðum starfsmönnum til starfa í verksmiðju fyrirtækisins á Bíldudal. Um framtíðarstörf er að ræða. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

 

Æskileg reynsla og hæfni:

  • Öryggisvitund.
  • Frumkvæði.
  • Samviskusemi og vandvirkni.
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Vinnuvélaréttindi

 

Kynntu þér málið.
 

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Sveinn Ólafsson framkvæmdastjóri í síma 897 0303. Einnig má senda fyrirspurnir á einar@iskalk.is.
 

Umsóknir ásamt ferilskrá afhendist á skrifstofu  Íslenska kalkþörungafélagsins eða á  netfangið einar@iskalk.is,

Íþrótta- og æskulýðsmál til fyrirmyndar

Mánudaginn 3.febrúar n.k. mun Héraðssambandið Hrafna-Flóki, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur boða til opins vinnufundar þar sem farið verður yfir íþrótta- og æskulýðsmál á svæðinu. Farið verður yfir stöðuna eins og hún er í dag og rætt um hvernig við viljum sjá íþrótta- og æskulýðsmál á starfssvæði HHF í framtíðinni.

Við hvetjum alla íþróttaáhugamenn, stjórnarmenn félaga, foreldra og iðkendur til að mæta og fara í þessa vinnu með okkur.

Viljum við hafa það óbreytt eða viljum við hafa það með öðrum hætti? Ef við viljum breytingar hvernig viljum við að þær verði og hvernig framkvæmum við þær breytingar? Unnið verður í hópum svo að sem flestir geti komið sínum málum á framfæri.

Valdimar Gunnarsson mun mæta á fundinn sem sérstakur ráðgjafi og fulltrúar frá Ungmennafélagi Íslands verða einnig á staðnum.

Fundurinn verður haldinn í anddyri Félagsheimilis Patreksfjarðar og hefst kl.18:00. Áætlað er að fundurinn muni standa til kl. 21:00. Boðið verður upp á léttan kvöldverð og því skal tilkynna þátttöku fyrir laugardaginn 1.febrúar n.k. á netfangið hrafnaf@simnet.is eða hjá Lilju í s: 848-3968.

Stjórn HHF

Dansnámskeið fyrir fullorðna

Dansnámskeið fyrir fullorðna verður á Tálknafirði í næstu viku, eða frá mánudegi til og með fimmtudags.  Kennt verður í Íþróttahúsinu og er kennari Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Reiknað er með að kennslustundin sé 1.klst og 15 min. og hefst kl. 19.00.  Kostnaður er 1.000 kr. fyrir manninn og er um „einstaklingsmiðað nám að ræða“.  

Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að bóka sig með því að senda staðfestingu á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is


Fasteignagjöld 2014

Nú er verið að ljúka álagningu fasteignagjalda 2014. Gjalddagar verða 7. Fyrsti gjalddagi 1.febrúar, síðan 1.hvers mánaðar (febrúar til ágúst). Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt fyrir eindaga. Ef gjöld eru samtals lægri en kr. 25.000.- er um einn gjalddaga að ræða og er hann 15.febrúar. Ef álagning er kr. 500.- eða lægri verður krafan ekki innheimt.
 

Álagningarseðlar verða sendir út en verða einnig aðgengilegir á island.is 

 

Vinsamlega athugið að ekki verða sendir út greiðsluseðlar nema þess sé sérstaklega óskað. Greiðsluseðlar munu birtast í heimabanka með sama hætti og á árinu 2012. Engin breyting verður hjá þeim sem pöntuðu seðla í fyrra. Hægt er að panta og afpanta seðla með því að hringja í síma 456-2539 á opnunartíma skrifstofu og/eða senda tölvupóst á talknafjordur@talknafjordur.is.
 

Sjá nánar: samantekt álagningar 2014 (.pdf)

Auglýsing: fundur í hreppsnefnd

463. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, þriðjudaginn 21. janúar 2014 og hefst kl. 17:00.
 
Sjá fundarboð hér (.pdf)

 

Sveitarstjóri.

Nýtt dreifikerfi RÚV frá 3. febrúar

Stafrænt dreifikerfi RÚV verður tekið í notkun í áföngum á árinu 2014. Nú er komið að Ísafirði 401, Patreksfirði 450 og 451, Tálknafirði 460 og Bíldudal 465. 1. febrúar verður skipt yfir í stafrænar útsendingar. Ef þú býrð á þessum stöðum, ert ekki með myndlykil og notar loftnet er ráðlegt að fara inn á eftirfarandi vefsíður til að fá nánari upplýsingar: www.ruv.is/stafraent, www.vodafone.is/sjonvarp/ruv eða www.sart.is, eða hringja í þjónustuver Vodafone í síma 1414.
 

Stafræn tækni hefur rutt sér til rúms á fjölmörgum sviðum mannlífsins á síðastliðnum árum. Hljómplötur og plötuspilarar eru löngu horfin úr almenningseign og hljómsnældur og segulbönd heyra sögunni til. Nýrri fyrirbæri eins og DVD, VOD og minnislyklar hafa komið í staðinn.
 

Um allan heim er verið að leggja niður hliðrænt dreifikerfi sjónvarps. Það hefur þegar verið gert í nágrannalöndum okkar og verður gert í áföngum á þessu ári hjá RÚV. Góðu fréttirnar eru að með stafrænum útsendingum aukast myndgæðin til muna.

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón