A A A

Dagur tónlistarskóla á Íslandi

Fyrstu sameinlegu tónleikar Tónlistarskóla Tálknafjarðar og Tónlistarskóla Vesturbyggðar verða haldnir Laugardaginn  1. mars  2014  kl. 14:00 í Tálknafjarðarkirkju.
 

Íbúar og gestir á sunnanverðum Vestfjörðum eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessum fyrstu sameiginlegu tónleikum tónlistarskólanna.
 

Aukaferð með Baldri

Aukaferð verður með ferjunni Baldri föstudaginn 7. mars.
 

Frá Stykkishólmi   kl 09:00

Frá Brjánslæk        kl 12:00

Samtal um framtíð og samvinnu í markaðssetningu

Íslandsstofa og Markaðsstofa Vestfjarða boða til samtals aðila í ferðaþjónustu og tengdra hagsmunaaðila. Á fundinum er ætlunin að ræða möguleika á að stilla enn frekar saman strengi í markaðssetningu landshluta og á landsvísu. Hvaða árangri viljum við ná í ferðaþjónustunni í framtíðinni og hvað er árangur í okkar huga? Hvernig getum við unnið betur saman og nýtt okkur þá markaðssetningu sem fer fram?
Á fundinum verða Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu og Díana Jóhannsdóttir, Markaðsstofu Vestfjarða sem mun stýra fundinum.

Fundarstaðir eru:
Tálknarfirði, 25 febrúar, kl: 14:30-16:30, Hópinu
Hólmavík, 26. febrúar, kl: 9-12, Café Riis
Ísafjörður, 26. febrúar, kl. 16-19, Hótel Ísafirði
Vonumst til þess að sjá sem flesta. Skráning fer fram hjá Díönu í netfangið: travel@westfjords.is

Auglýsing: Sveitarstjórnarfundur

464. fundur Sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1 Tálknafirði, þriðjudaginn 18. Febrúar og hefst kl 17.00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)

 

Sveitarstjóri

Áframhald á tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi

Verkefnið um hækkun menntunarstigs í Norðvestur kjördæmi er nú að fara af stað að nýju.
 

Símenntunarmiðstöðvarnar í kjördæminu og Háskólinn á Bifröst hafa gengið frá samkomulagi um framkvæmd nokkurra verkþátta í verkefninu.
 

Verkefnið hófst á síðast liðnu ári, en nokkur óvissa var umframhald þess. Þeirri óvissu var eytt með samningi menntamálaráðherra við Háskólanum á Bifröst fimmtudaginn 5. febrúar s.l. Þar var Háskólanum falið að fara með framkvæmd verksins og því tryggð fjármögnun. Verkefnið nær til eins árs og skal ljúka í janúar 2015.
 

Meginmarkmið verkefnisins er að efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám á vinnustað, auka samstarf atvinnulífs og fræðsluaðila í kjördæminu um starfstengt nám, fjölga einstaklingum sem ljúka iðnnámi og efla íslenskukunnáttu innflytjenda. Verkefnið er liður í átaki til þess að hækka menntunarstig í íslensku atvinnulífi og eitt af nokkrum verkefnum sem sett voru af stað í framhaldi af kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins í maí 2011. Samskonar tilraunaverkefni var sett í gang í Breiðholti í fyrra.

Sjá nánar á frmst.is

Starfsfólk vantar

Íslenska kalkþörungafélagið leitar að duglegum og jákvæðum starfsmönnum til starfa í verksmiðju fyrirtækisins á Bíldudal. Um framtíðarstörf er að ræða. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

 

Æskileg reynsla og hæfni:

  • Öryggisvitund.
  • Frumkvæði.
  • Samviskusemi og vandvirkni.
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Vinnuvélaréttindi

 

Kynntu þér málið.
 

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Sveinn Ólafsson framkvæmdastjóri í síma 897 0303. Einnig má senda fyrirspurnir á einar@iskalk.is.
 

Umsóknir ásamt ferilskrá afhendist á skrifstofu  Íslenska kalkþörungafélagsins eða á  netfangið einar@iskalk.is,

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón