A A A

Auglýsing: Sveitarstjórnarfundur

474. fundur sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn þriðjudaginn 16. september og hefst kl 17:00. 
Sjá fundarboð hér (.pdf)

 

Sveitarstjóri

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða kominn út

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða fyrir veturinn 2014 – 2015 var að koma út og hefur honum verið dreift á heimili og fyrirtæki á Vestfjörðum. Í námsvísinum eru auglýst um 70 námskeið og námsleiðir í 7 flokkum. Er námið sem boðið er mjög ólíkt að innihaldi og lengd. Með því vill Fræðslumiðstöðin koma til móts við sem flesta, enda kappkostar hún að þjóna öllum íbúum Vestfjarða hvar sem þeir búa og hvaða menntun sem þeir hafa.

...
Meira

Fjölbrautaskóli Snæfellinga boðar til foreldrafundar

Fimmtudaginn 11. september kl. 20:00 – 21:30.

Fundarstaðir: FSN Grundarfirði og Framhaldsdeild FSN á Patreksfirði.

Starfsmenn Fjölbrautaskóla Snæfellinga  kynna starfsemi skólans.
 

Dagskrá:

  1. Almennt um FSN                                                         
  2. Kynning á nýjum námsbrautum
  3. Kennsluhættir-Námsmat                           
  4. Kynning á stoðþjónustu
  5. Foreldrafélag FSN
  6. Önnur mál

Umsjónarkennarar nýnema verða á staðnum

 

Skólameistari

Jón Eggert Bragason

Starfsfólk óskast

Íslenska kalkþörungafélagið leitar að duglegu og jákvæðu starfsfólki til starfa í verksmiðju fyrirtækisins á Bíldudal. Í boði eru 5 framtíðarstörf sem henta jafnt konum sem körlum.

Æskileg reynsla og hæfni:

  • Öryggisvitund
  • Frumkvæði
  • Samviskusemi og vandvirkni
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Vinnuvélaréttindi


Allar nánari upplýsingar veitir Einar Sveinn Ólafsson framkvæmdastjóri í síma 897 0303. Einnig má senda fyrirspurnir á einar@iskalk.is.

Umsóknir ásamt ferilskrá afhendist á skrifstofu Íslenska kalkþörungafélagsins eða á netfangið einar@iskalk.is.

 

Truflun á áætlun ferjunnar Baldurs í september

Eins og kunnugt er hafa Sæferðir unnið að því í um eitt ár að finna ferju til að endurnýja núverandi ferju, Baldur.  Eftir mikla vinnu og eftirgrennslan tókst loks að finna norska ferju sem hentar vel. Um er að ræða nokkru stærra skip en Baldur og nemur aukningin í bílaplássi um 40 – 45%. Auk þess er skipið með alveg lokað bílaþilfar og er lofthæð þilfarsins yfir 4,5 metrar.

Skipið hefur verið í siglingum í Lofoten í N-Noregi um árabil og uppfyllir kvaðalaust allar norskar reglur varðandi siglingar á svokölluðu „C“ svæði, sem er það sama og Breiðafjörður flokkast undir sem og samræmdar Evrópureglur sem eru þær sömu og hér á landi og íslensk siglingayfirvöld miða sig almennt við og fara eftir. Búið var að semja um kaupverð skipsins, fjármagna kaupin og semja um afhendingu í lok júlí s.l. Í framhaldi var samið um sölu á Baldri miðað við að nýja skipið hæfi siglingar á Breiðafirði 6. September n.k. en samið hafði verið við Vegagerðina um að Baldur færi þá til Vestmannaeyja til að leysa Herjólf af í 3 til 4 vikur. Um þetta voru gerðir fastir dagsettir samningar, enda átti tíminn að vera nægur til að fá staðfest innflutningsleyfi á ferjuna frá Noregi.
 

Nú gerist það hins vegar, að eftir um 8 vikur frá því að íslensk siglingar yfirvöld skoðuðu ferjuna sem Sæferðir hyggjast kaupa frá Noregi, og gáfu henni góð meðmæli, að innflutningsleyfi fyrir skipinu hefur ekki ennþá fengist. Eins og fyrr segir uppfyllir skipið allar norskar og evrópskar reglur og þar með taldar íslenskar reglur. En siglingayfirvöld beita fyrir sig, að mati Sæferða og lögmanna félagsins, óljósum hindrunum á innflutningi skipsins. Ágreiningur er því á milli Sæferða og siglingayfirvalda um túlkun regluverksins.  Óskað hefur verið eftir úrskurði Innanríkisráðuneytisins í málinu en því miður er ljóst að þessi töf mun valda því að ekki tekst að koma norsku ferjunni í áætlun á tilsettum tíma. Vonast er samt eftir, að einungis fárra daga töf verði á afgreiðslu málsins. Samt sem áður er ljóst að fella verður niður siglingar yfir Breiðafjörð í nokkra daga,  þar sem útgerðin er bundin af samningi sínum við Vegagerðina um leigu á Baldri vegna afleysinga fyrir Herjólf frá 6. september.
 

Vonir okkar standa til að  ferjusiglingar yfir Breiðafjörð falli að hámarki niður í ca. eina viku og að norska ferjan verði komin í áætlun fyrir miðjan september. Ferðir yfir fjörðinn falla því niður frá og með 6. september, nema siglingar í Flatey sem verða 3 ferðir í viku á skoðunarferðaskipinu Særúnu. (Nánar í afgreiðslu 433 2254 og seatours@seatours.is)
 

Allar nánari upplýsingar um þessi mál veitir Pétur Ágústsson, í síma 864 8865
eða Páll kr. Pálsson, stjórnarformaður Sæferða,  í síma 820 1030 

Fréttatilkynning tekin af síðu Sæferða, saeferdir.is

Félagsmiðstöðin Tunglið

Tálknafjarðarhreppur auglýsir eftir forstöðumanni í félagsmiðstöðina Tunglið frá og með 1 október. Um hlutastarf er að ræða og er starfshlutfall 20%.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps.

Umsóknir má senda í tölvupósti á talknafjordur@talknafjordur.is


Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón