A A A

Nýr forstöðumaður á Minjasafni Egils Ólafssonar að Hnjóti

Inga Hlín Valdimarsdóttir
Inga Hlín Valdimarsdóttir

Inga Hlín Valdimarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Minjasafns Egils Ólafssonar að Hnjóti. Inga lauk BA prófi í fornleifafræði frá Háskóla Íslands 2007, og  er í meistaranámi við Háskóla Íslands í safnafræði. Hún hefur góða reynslu á safnastarfi, en hún starfaði sem safnvörður hjá Byggðasafni Árnesinga á Eyrabakka og einnig á Þjóðminjasafni Íslands.

Inga Hlín mun hefja störf við safnið í byrjun maí.

 

sveitarstjóri

Fjallaskíða námskeið

Fjallaskíða námskeið á sunnanverðum Vestfjörðum, 1-3. maí 2015

Upphafsstaður: Patreksfjörður
Kennd verða undirstöðu atriði eins og leiðarval, mat á snjóflóðahættu.
Umsjónarmaður: Ívar Finnbogason einn af reyndustu skíðaleiðsögumönnum landsins.
Hægt er fá allan búnað leigðan í samráði við leiðbeinenda frá Íslensku ölpunum.
Sjá nánar hér í auglýsingu . (pdf)

Sveitarstjórnarfundur

484. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, miðvikudaginn 29. apríl 2015 og hefst kl. 17:00.

 

Sjá fundarboð hér (.pdf)
  
              Sveitarstjóri

Sumarstörf

Starfskraftur óskast til þess að hafa yfirumsjón  og  verkstjórn með vinnuskóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2015  er stendur frá  8.júní til og með 17.júlí.

Menntunar- og hæfniskröfur :

  • Reynsla og menntun/þekking á skipu- og verklagi við umhirðu grænna svæða.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ökuréttindi
  • Reyklaus
  • Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 25 ára

Starfsfólk óskast  til þess að sinna umhirðu grænna svæða og minniháttar viðhaldsverkum  s.s. málningarvinnu.  Laus eru til umsóknar  fjögur  100 % stöðugildi,  vinnutími frá kl. 8 – 12  og 13 – 17.
 

Vinnuskóli  Tálknafjarðarhrepps hefst mánudaginn 8.júní og stendur til fimmtudagsins 16.júlí.  Helstu verkefni skólans varða snyrtingu og fegrun bæjarins.  Þeir sem geta sótt um í vinnuskólanum eru börn fædd á árunum 1999 – 2001.    Reglur og skilmálar eru aðgengileg á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps sem og umsóknareyðublöð starfsumsókn og sérstök umsókn um vinnuskóla. 
 

Nánari upplýsingar m.a. um launakjör veitir sveitarstjóri skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, í síma 456-2539 og netfang talknafjordur@talknafjordur.is
 

Umsóknareyðublöð starfsumsókn og umsókn um vinnuskóla eru aðgengileg á skrifstofu og neðst á heimasíðu sveitarfélagsins  talknafjordur.is

 

Forstöðumaður áhaldahúss
 

Héraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka 2015

Héraðsþing HHF verður haldið á Hópinu á Tálknafirði miðvikudaginn 29.apríl 2015 og hefst kl. 18.  Öllum er frjálst að mæta á þingið og eru allir íbúar í V-Barðastrandarsýslu hvattir til að mæta og taka þátt í uppbyggingu á íþróttamenningu á svæðinu. 
 
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður nýr íþróttafulltrúi kynntur til starfa auk þess að mótaskrá sumarsins verður samþykkt.
 
                   Boðið verður upp á léttar veitingar.

                   Lilja Sigurðardóttir, Formaður HHF

Sveitarstjórnarfundur

483. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, miðvikudaginn 22. apríl 2015 og hefst kl. 17:00.

 

Sjá fundarboð hér (.pdf)
  
              Sveitarstjóri

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón