A A A

Kosningar um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

                                                        Fyrirkomulag kosninga

Kosningaréttur

Kosningarétt hafa þau sem náð hafa 16 ára aldri 28. október 2023. Norrænir ríkisborgarar hafa einnig kosningarétt ásamt erlendum ríkisborgurum sem hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt þann 28. október 2023. Opnað hefur verið fyrir uppflettingu á kjörskrá hjá Þjóðskrá Íslands á síðunni hér
 

Kosningafyrirkomulag

Við kosningarnar er farið eftir reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga nr. 922/2023 en reglurnar eru að mörgu leyti sambærilegar kosningalögum en helstu breytingarnar fela í sér að boðið er upp á póstkosningu og færanlegan kjörstað í stað utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Einnig er ekki um einn eiginlegan kjördag að ræða heldur er tímabil atkvæðagreiðslu frá 9. október til 28. október. Í reglugerðinni kemur skýrt fram að kjörseðlar megi ekki vera auðkenndir með þeim hætti að þeir séu rekjanlegir til kjósanda. Er því ekki hægt rekja atkvæði til einstakra kjósenda jafnvel þótt atkvæði sé greitt með póstkosningu. Kjósendur sem nýta sér póstkosningu þurfa þó að tryggja að farið sé eftir leiðbeiningum svo atkvæðið sé sannarlega ekki rekjanlegt til kjósanda. Það þýðir að atkvæði er sett í ómerkt umslag sem er lokað og það umslag ásamt fylgiseðli er sett í annað umslag sem skilað er til kjörstjórnar.
 

Kjörstaðir


Tálknafjarðarhreppur

Frá 9. október til 27. október er kosið á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps á opnunartíma skrifstofunnar sem er eftirfarandi:

  • Mánudaga til fimmtudaga: 10:00–14:00

  • Föstudaga: 10:00–13:30

Laugardaginn 28. október verður kosið með hefðbundnum hætti í Tálknafjarðarskóla frá 12:00–18:00

Vesturbyggð

Frá 9. október til 27. október er kosið í Ráðhúsi Vesturbyggðar á opnunartíma ráðhússins sem er eftirfarandi:
Mánudaga til fimmtudaga: 10:00–12:30 // 13:00–15:00
Föstudaga: 10:00–13:00

Laugardaginn 28. október verður kosið með hefðbundnum hætti milli 12:00–18:00 í þremur kjördeildum og þurfa íbúar að mæta á kjörstað í sinni kjördeild. Kosið verður á eftirfarandi stöðum:

  • Félagsheimilinu Baldurshaga - Bíldudal

  • Félagsheimili Patreksfirðinga - Patreksfirði

  • Félagsheimilinu Birkimel – Barðaströnd


Póstkosning
Sjái íbúi sér ekki fært að mæta á kjörstað á kjörtímabilinu er hægt að óska eftir því að greiða atkvæði sitt með póstkosningu. Slík beiðni skal berast skrifstofum sveitarfélaganna í tölvupósti eða í síma og skal taka fram hvort kjörgögn eigi að berast til viðkomandi aðila í almennum bréfpósti eða í tölvupósti. Sé kosið í póstkosningu ber íbúi ábyrgð á að koma kjörseðli á kjörstað fyrir lokun kjörstaða, 28. október kl. 18:00.

  • Kjósendur í Tálknafjarðarhreppi geta sent beiðni á netfangið sameining@talknafjordur.is eða í síma 450-2500.

  • Kjósendur í Vesturbyggð geta sent beiðni á netfangið sameining@vesturbyggd.is eða í síma 450-2300

Færanlegur kjörstaður

Kjörstjórn hefur ákveðið að nýta sér heimild til að vera með færanlegan kjörstað. Eigi kjósandi erfitt með að mæta á kjörstað getur hann óskað eftir færanlegum kjörstað. Íbúar í dreifðari byggðum, sjúkrastofnanir, stærri vinnustaðir og fjölmennir viðburðir geta einnig óskað eftir færanlegum kjörstað. Stað- og tímasetning færanlegs kjörstaðar verður auglýst með a.m.k. fimm daga fyrirvara á vefsíðum Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar og á síðunni vestfirdingar.is.

Beiðni um færanlegan kjörstað þarf að berast fyrir opnun kjörstaða kl. 10:00 þann 9. október 2023.

  • Kjósendur í Tálknafjarðarhreppi geta sent beiðni á netfangið sameining@talknafjordur.is eða í síma 450-2500.

  • Kjósendur í Vesturbyggð geta sent beiðni á netfangið sameining@vesturbyggd.is eða í síma 450-2300

    www.vestfirdingar.is

Krabbameinsfélagið Sigurvon

Þriðjudaginn 17. október klukkan 20:00 vill stjórn Krabbameinsfélagsins Sigurvonar hitta íbúa sunnanverðra Vestfjarða í Félagsheimilinu á Patreksfirði. Bjóðum í spjall og kynningu á félaginu. Hvetjum alla til að koma!


Tillaga um ungmennaþing Vestfjarða samþykkt á Fjórðungsþingi Vestfirðinga

Ungmennin Ali Murtadah Kamil Jasim Sultan AL-Saedi frá Súðavíkurhreppi, Soffía Rún Pálsdóttir frá Ísafjarðarbæ og Andrés Páll Ásgeirsson frá Tálknafjarðarhreppi á 68. Fjórðungsþingi Vestfirðinga.
Ungmennin Ali Murtadah Kamil Jasim Sultan AL-Saedi frá Súðavíkurhreppi, Soffía Rún Pálsdóttir frá Ísafjarðarbæ og Andrés Páll Ásgeirsson frá Tálknafjarðarhreppi á 68. Fjórðungsþingi Vestfirðinga.

Fjórðungsþing Vestfirðinga fór fram í Bolungarvík 6. og 7. október 2023. Sveitarstjórnarfulltrúarnir Lilja Magnúsdóttir oddviti, Jenný Lára Magnadóttir og Guðlaugur Jónsson ásamt sveitarstjóranum Ólafi Þór Ólafssyni voru fulltrúar Tálknafjarðarhrepps á þinginu.

 

Á Fjórðungsþinginu var samþykkt tillaga um að árlega fari fram ungmennaþing á vegum Fjórðungssambands Vestfirðinga og að það þing kjósi ungmennaráð Vestfjarða sem starfi sem ráðgefandi nefnd fyrir stjórn Fjórðungssambandsins. Ráðið verði kjörið til eins árs í senn og kosinn verði einn aðalfulltrúi og einn varafulltrúi úr hverju sveitarfélagi á Vestfjörðum þar sem ungmenni eru búsett. Það voru þrír fulltrúar ungmenna á Vestfjörðum sem fylgdu tillögunni eftir og var Tálknfirðingurinn Andrés Páll Ásgeirsson í þeim hópi.

Póstkosning

Sjái íbúi sér ekki fært að mæta á kjörstað á kjörtímabilinu er hægt að óska eftir því að greiða atkvæði sitt með póstkosningu. Slík beiðni skal berast skrifstofum sveitarfélaganna í tölvupósti eða í síma og skal taka fram hvort kjörgögn eigi að berast til viðkomandi aðila í almennum bréfpósti eða í tölvupósti. Sé kosið í póstkosningu ber íbúi ábyrgð á að koma kjörseðli á kjörstað fyrir lokun kjörstaða, 28. október kl. 18:00.

 

Þegar kjósandi greiðir atkvæði með póstkosningu fær kjósandi kjörgögn, þ.e.a.s. kjörseðil og fylgibréf með kjörseðli (og tvö umslög ef kjörgögn eru afhend í pósti annars ber kjósandi að útvega sjálfur tvö umslög). Í fylgibréfinu má finna nákvæmar leiðbeiningar um hvernig skuli standa að því að greiða atkvæði og ganga frá kjörseðli svo hann sé ekki rekjanlegur til kjósanda.
 

Kjósandi ritar atkvæði sitt á kjörseðilinn án þess að nokkur annar sjái. Leggur samanbrotið atkvæði sitt í ópersónugreinanlegt umslag í viðurvist tveggja lögráða votta eða lögbókanda og límir það aftur. Því næst fyllir kjósandi út fylgibréf og undirritar. Njóti hann aðstoðar fyllir aðstoðarmaður út fylgibréfið og undirritar. Vottar eða lögbókandi skulu votta auðkenni kjósanda og aðstoðarmanns eftir atvikum.
 

Kjósandi leggur síðan fylgibréfið og kjörseðilsumslagið í sendiumslag, límir það aftur og áritar til kjörstjórnar Tálknafjarðarhrepps eða Vesturbyggðar, eftir því hvoru sveitarfélaginu kjósandi tilheyrir.
 

Kjósandi annast sendingu kjörgagna til kjörstjórnar og ber sjálfur kostnað af sendingu þeirra. Einnig er heimilt að koma kjörgögnum til kjörstjórnar á annan hátt en kjörgögn þurfa að berast kjörstjórn fyrir lok atkvæðagreiðslu þann 28. október kl.18:00.
 

Vakin er athygli á því að samkvæmt reglugerð um íbúakosningar nr. 922/2023 eru

www.vestfirdingar.is

Sveitarstjórnarfundur

Boðað er til 620. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps sem fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, þriðjudaginn 10. október 2023 og hefst kl. 17:00.

Sjá fundarboð hér (.pdf)

Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri

Truflanir í vatnsveitu föstudaginn 6. október 2023

Vegna bilunarleitar í vatnsveitu þarf að loka fyrir vatn á ýmsum stöðum í dag.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón