Vestfjarðavegur (60) milli Bjarkalundar og Melaness í Reykhólahreppi, drög að tillögu að matsáætlun
Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Vestfjarðavegi (60) milli Bjarkalundar og Melaness í Reykhólahreppi. Núverandi vegur er 41,6 km langur en nýr vegur verður 19,7-21,7 km langur, háð leiðarvali. Áætlanir eru um að meta umhverfisáhrif þriggja leiða, þ.e. D1, H og I.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur um sunnanverða Vestfirði.
Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á vef Vegagerðarinnar, samkvæmt reglugerð 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur til 7. ágúst 2012. Athugasemdir skal senda með tölvupósti til kristjan.kristjansson@vegagerdin.is eða helga.adalgeirsdottir@vegagerdin.is eða til Vegagerðarinnar, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík.
Drög að tillögu að matsáætlun (.pdf)
Teikningar (.pdf)
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir