Vegna covid-smita á sunnanverðum Vestfjörðum
Nokkur covid-smit hafa nú komið upp á sunnanverðum Vestfjörðum. Vegna þessa fundaði aðgerðarstjórn Almannavarna fyrr í dag og einnig aðgerðarstjórn Tálknafjarðarhrepps. Að svo stöddu þykir ekki ástæða til að grípa til takmarkanna á starfsemi stofnannaTálknafjarðarhrepps umfram það sem almennar sóttvarnarreglur segja til um, en náið verður fylgst með þróun mála í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld og aðgerðarstjórn Almannavarna. Ýmsum viðburðum sem voru ráðgerðir á næstu dögum og kalla á að fólk komi saman verður frestað og verður það betur kynnt eins og við á í hverju tilfelli.
Allt fólk er hvatt til að gæta að vel að persónubundnum sóttvörnum og við saman verðum að gera allt það sem í valdi okkar stendur til að hindra frekari útbreiðslu smita í samfélaginu. Þá eru fyrirtæki á Tálknafirði hvött til að huga að sóttvörnum í sinni starfsemi.
Opið verður í sýnatöku á vegum Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í Félagsheimilinu á Patreksfirði frá kl. 21:00 í kvöld og aftur kl. 08:00 á morgun, miðvikudaginn 24. nóvember nk. Allir íbúar með einkenni, þó þau séu lítil, eða með tengsl við smitaða einstaklinga eru hvattir til að nýta sér sýnatökuna og opið er fyrir bókanir á heilsuvera.is.
Ólafur Þór Ólafsson
sveitarstjóri
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 634. fundur sveitarstjórnar 9. apríl 2024
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir