A A A

Útboð á sorp­hirðu í Vest­ur­byggð og Tálkna­firði

Vest­ur­byggð og Tálkna­fjörður hafa í samein­ingu óskað eftir tilboðum í sorp­hirðu til næstu fjög­urra ára hið minnsta.

Útboðið nær bæði yfir hirðu og eyðingu á sorpi fyrir sveitarfélögin, ásamt ósk um tilboð í þá þjónustu sem snýr að söfnun á lífrænu sorpi við heimili, móttaka og afsetning á ýmsum efnisflokkum, ásamt aðstöðu til móttöku á söfnunarsvæðum, bæði í þéttbýli og dreifbýli.
 

Um mjög viðamikið verkefni er að ræða þar sem horft verður til þess að Vesturbyggð og Tálknafjörður muni í mun meira mæli en nú er, horfa til endurnýtingar á þeim efnum sem nú skila sér frá íbúum, ásamt því að farið verður í vinnu við að innleiða þá hugmyndafræði að þeir sem menga minna greiða minna.
 

Skilafrestur fyrir tilboð er til 29. júlí kl. 12:00.

Eftirfarandi hlekkur vísar á útboðið: http://utbodsvefur.is/sorphirda-vesturbyggd-og-talknafjordur/


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón