Tilkynning frá félagsþjónustusvæðum Vestfjarða
Í ljósi umfjöllunar um kynferðisbrotamál í Kastljósi undanfarna daga vilja félagsþjónustur á Vestfjörðum (Félagsþjónustan við Djúp, Félagsþjónusta Ísafjarðarbæjar, Félagsþjónusta Stranda- og Reykhólahrepps og Félagsþjónustan í Vestur- Barðastrandarsýslu) leggja áherslu á mikilvægi þess að þeir sem hafa orðið fyrir slíkri reynslu fái viðeigandi aðstoð og stuðning.
Félagsmálastjórar á Vestfjörðum, veita aðstoð í slíkum málum og þeir sem vilja eru hjartanlega velkomnir til viðtals. Jafnframt er bent á samtökin Stígamót eða Sólstafi Vestfjarða.
Elsa Reimarsdóttir, félagsmálastjóri í Vesturbyggð
Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri í Bolungarvík og Súðavík
Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps
Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjlskyldusviðs, Ísafjarðarbæjar
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir