A A A

Þjónusta við fiskeldi á Vestfjörðum – opnir fundir

Fulltrúar frá VAKA og Akvaplan Niva bjóða til funda um fiskeldismál á Tálknafirði og Ísafirði, dagana 3. og 4. desember nk . Öllum er frjálst að mæta á hvorn staðinn sem er. Tilgangurinn er að koma og hitta eldismenn og aðra þá sem láta sig fiskeldi varða og opna á létt spjall um þá þjónustu sem VAKI og Akvaplan Niva bjóða eldisfyrirtækjum. Einnig munu forsvarsmenn Arctic fish og Arnarlax vera á þessum fundum og ræða við íbúa um núverandi starfsemi og framtíðarplön.

 

Fundirnir byrja á 20 mín. kynningum frá VAKA og Akvaplan Niva til að opna umræðuna.
Við verðum á Tálknafirði þann 3. desember á Hópinu kl.18.00 og á Ísafirði þann 4. desember á Hótel Ísafirði kl. 12.00. Léttar veitingar verða í boði.

 

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Með von um góðar undirtektir og skemmtilegar umræður.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón