Tækifæri til að hafa áhrif á strandsvæðisskipulag á Vestfjörðum
Hafin er vinna við gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum grundvelli laga um skipulag haf- og strandsvæða. Svæðisráð, skipað af umhverfis- og auðlindaráðherra, bera ábyrgð á gerð strandsvæðisskipulagsins en Skipulagsstofnun annast gerð skipulagsins í umboði ráðsins.
Allir eru hvattir til að kynna sér efni lýsingu skipulagsins og koma á framfæri ábendingum um nálgun og efnistök í skipulagsvinnunni. Það er mikilvægt að þeir sem hafa þekkingu og innsýn á einstaka svæðum komi sínum athugasemdum á framfæri.
Ábendingar þurfa að vera skriflegar og má koma á framfæri bréfleiðis til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á hafskipulag@skipulag.is eða á athugasemdagátt á vefnum hafskipulag.is. Frestur til að koma á framfæri ábendingum er til 1. júní 2020.
Samráðsvefsjá: https://app.maptionnaire.com/is/7572/
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir