Starfsfólk óskast
Íþróttahúsið á Tálknafirði auglýsir laust 100% starf karlkyns sundlaugarvarðar.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. október.
Störf sundlaugarvarða felast í almennri afgreiðslu og þrifum auk eftirlits með sundlaug og íþróttahúsi.
Unnið er á 12 klst vöktum alla virka daga viku í senn og aðra hverja helgi.
Æskilegt er að viðkomandi sé þjónustulundaður og ekki er verra að hafa dálítið frumkvæði.
Æskilegt er að viðkomandi kunni amk eitt tungumál auk íslenskunnar.
Umsækjendur skulu vera orðnir 18. ára.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOS-VEST og Launanefndar sveitafélaga.
Skylt er að afla upplýsinga úr sakaskrá samkvæmt 4. málsgrein 10. greinar Æskulýðslaga nr. 70/2007.
Allar nánari upplýsingar veitir Bjarnveig Guðbrandsdóttir í síma: 846-4713
eða sundlaug@talknafjordur.is
Umsóknarfrestur er til 20. september 2022.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 634. fundur sveitarstjórnar 9. apríl 2024
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir