A A A

Skipulagsauglýsing

Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepp 2006-2018 fyrir svæði I2-Gileyri skv. 30. gr.skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um umhverfismat áætlana 105/2006

 

Sveitarfélagið Tálknafjörður hyggst vinna breytingu á Aðalskipulagi Tálknafjarðar 2006-2018. Fyrirhuguð skipulagsbreyting tekur til þess hluta gildandi aðalskipulags sem snýr að seiðaeldi á Gileyri. Samhliða breytingu á aðalskipulagi verður gerð breyting á deiliskipulagi athafnasvæðis seiðaeldis í landi Gileyrar og Eysteinseyrar.

 

Bæði aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagsbreytingin eru háð lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

 

Skipulagslýsingin fyrir báðar breytingar eru settar fram í sameiginlegri greinargerð og verður til sýnis á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps Strandgötu 38, 460 Tálknafirði og  á heimasíðu sveitarfélagsins www.talknafjordur.is.

 

Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar við við skipulagslýsinguna og skal þeim skilað skriflega á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, Strandgötu 38, 460 Tálknafirði eða á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is fyrir 27. febrúar n.k. 

 

SKIPULAGSLÝSINGUNA MÁ SJÁ HÉR: SA26I_lysing-Br_ASK.pdf


 

Virðingarfyllst,

Óskar Örn Gunnarsson

Skipulagsfulltrúi Tálknafjarðarhrepps

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón