Popp, kók og vísindi
Vísindamenn á Vestfjörðum bjóða á opið hús í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði fimmtudaginn 17. nóvember 2022 kl. 17:30 til 18:30.
Vestfirskir rannsóknarmenn og fyrirtæki munu kynna niðurstöður sínar á áhugaverðum rannsóknum sem hafa nýlega verið framkvæmdar á Vestfjörðum. Fyrirlestrarnir fara fram í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði og boðið verður upp á popp og kók. Í lokin verður stuttur spurningar leikur með vinningi. Viðburðurinn er styrktur af Rannsóknarsamfélagi Vestfjarða, sem er þverfaglegur hópur rannsóknarmanna sem á það markmið að vilja kynna almenningi rannsóknir sínar.
https://www.facebook.com/events
Öll eru velkomin.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sveitarstjórn | 618. fundur 11. september 2023
- Sveitarstjórn | 617. fundur 22. ágúst 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 10. fundur 16. ágúst 2023
- Skipulagsnefnd | 11. fundur 15. ágúst 2023
- Sjá allar fundargerðir