A A A

Laust starf hjá Tálknafjarðarhrepp

Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Tunglsins

Starfið hefur fyrst og fremst farið fram á kvöldin, en félagsmiðstöðin hefur verið opin tvö kvöld í viku; mánudaga og föstudaga.  Forstöðumaður mun í samstarfi við nemendur hafa óbundnar hendur með breytingar á starfinu, með það að markmiði að efla starfið.

 

Ráðning er frá 1. janúar 2012  til 30. apríl 2012


Starf forstöðumanns er fjölbreytt og krefjandi. Í starfinu felst m.a.
• Daglegur rekstur félagsmiðstöðvar, þ.m.t. innkaup og einfalt bókhald.
• Skipulag innra starfs í nánu samstarfi við félagsmiðstöðvarráð.
• Að stuðla að virku klúbbastarfi og stuðningi við annað félagsstarf. 
• Hvetja unglinga til þátttöku og ýta undir sköpunargleði og ábyrgð þeirra.
• Fylgjast með nýjungum og þróun í starfi annarra félagsmiðstöðva og mynda tengslanet við þær.
• Skipulag og utanumhald reglulegra viðburða félagsmiðstöðvar s.s. SAMFÉS  þ.m.t. fjáröflun.

 

Mikil áhersla er lögð á gott samstarf við unglinga á Tálknafirði

Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með unglingum, er drífandi og hugmyndaríkur. Reynsla er kostur.

Tálknafjarðarhreppur áskilur sér rétt til þess að fara fram á sakavottorð frá umsækjendum, eins og í öðrum störfum með börnum og unglingum.

 

Starfshlutfall er 20%.  Um laun fer eftir gildandi kjarasamningum.

 

Nánari upplýsingar varðandi starfið eru veittar á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps í síma 456-2539 og/eða á netfangið oddviti@talknafjordur.is og hjá formanni skólanefndar Guðlaugu Björnsdóttur í síma 456-2623.

Umsóknarfrestur er til og með 9.desember 2011.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón