A A A

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð á tónleikaferð á suðursvæði Vestfjarða

1 af 3

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður á tónleikaferðalagi á suðursvæði Vestfjarða dagana 24. - 26. mars.

Kórinn heldur tónleika í Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd laugardaginn 24. mars kl. 16.30.

Sunnudaginn 25. mars syngur kórinn við messu kl. 14 í Tálknafjarðarkirkju og um kvöldið kl. 20 verða almennir tónleikar í Félagsheimili Patreksfjarðar.

Mánudaginn 26. mars heldur kórinn þrenna skólatónleika, fyrir Patreksskóla, Tálknafjarðarskóla og í Bíldudalsskóla en þeir tónleikar verða haldnir í Bíldudalskirkju.

 

Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana.

 

Á efnisskrá kórsins í tónleikaferðinni um Vestfirði eru íslensk og erlend tónverk m. a. eftir J. S. Bach, E. Grieg, Pál Ísólfsson, Hallgrím Helgason, Jón Þórarinsson, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Huga Guðmundsson auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. Efnisskráin er svo fjölbreytt að kórinn flytur ólík verk eftir því hvort um er að ræða t.d. kirkjutónleika eða skólatónleika. Margir hljóðfæraleikarar eru meðal kórfélaga.

 

Á þessari vorönn er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð skipaður 88 nemendum á aldrinum 16 - 20 ára.

Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir. Þetta er í fyrsta sinn sem Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heimsækir suðursvæði Vestfjarða. Starfandi rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, Sigurborg Matthíasdóttir, er með í för og fararstjóri er Orri Páll Jóhannsson fulltrúi Reykjavíkurborgar í skólanefnd MH.

 

Laugardagur 24. mars kl. 16.30     Tónleikar í félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd

 

Sunnudagur 25. mars  kl. 14.00     Sungið við messu í Tálknafjarðarkirkju.

Sunnudagur 25. mars kl.  20.00     Tónleikar í Félagsheimili Patreksfjarðar.

 

Mánudagur 26. mars   kl.   9.45      Skólatónleikar fyrir Patreksfjarðarskóla.

Mánudagur 26. mars   kl. 11.45      Skólatónleikar fyrir Tálknafjarðarskóla

Mánudagur 26. mars    kl.15.00      Skólatónleikar í Bíldudalskirkju fyrir Bíldudalsskóla.

 

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón