A A A

Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar, endurnýjun lagna

Tálknafjarðarhreppur óskar eftir tilboðum í verkið „Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar, endurnýjun lagna“.
 

Um er að ræða endurnýjun á gólfhitalögnum og neysluvatnslögnum í húsinu ásamt endurnýjun á öllum gólfefnum, dúk, flísum og parketi ásamt málun hússins að innan.
 

Helstu stærðir eru:

Gólfhitalagnir 4800 m

Parket 440 m

Flísar 309 m

Gólfdúkur 293 m
 

Verkinu skal vera að fullu lokið í 1. júní 2021.
 

Útboðsgögn verða afhent frá og með 8. janúar 2021. Þeir sem óska eftir að fá útboðsgögn afhent skulu senda tölvupóst á netfangið jbh@verkis.is.
 

Tilboðin verða opnuð hjá Tálknafjarðarhreppi, Strandgötu 38, 27. janúar 2021 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón