Forstöðumaður félagsstarfs Tálknafirði
Félagsþjónusta Vestur-Barðastrandasýslu auglýsir starf forstöðumanns við íbúamiðstöðina Vindheima laust til umsóknar. Um spennandi mótunar- og þróunarstarf er að ræða sem býður upp á fjölbreytta framtíðarmöguleika. Um 50% starf er að ræða.
Í starfinu felst m.a. að:
- Móta og skipuleggja félagsstarfið
- Ábyrgð á fjármálum deildarinnar
- Fylgjast með nýjungum og innleiða þær í starfinu
- Leiðbeina fólki við handverk og félagsstarf
- Skipuleggja og sjá um innkaup
- Létt þrif á húsnæði og hafa til léttar veitingar
Menntun og hæfniskröfur:
- Reynsla og hæfni sem nýtist við stjórnun og skipulag starfsins
- Hæfni og áhugi á mannlegum samskiptum
- Áhugi og færni í ýmisskonar handverki og félagsstarfi
- Vera leiðandi í samstarfi við aðila í samfélaginu
- Vera tilbúin til þess að sækja námskeið og innleiða nýjungar
Daglegur vinnutími er frá 12:30-16:30.
Í íbúahúsinu Vindheimum fer fram félagsstarf eldri borgara, félagsstarf unglinga og er húsið einnig opið fyrir aðra íbúa.
Félagsstarf eldri borgara mán og fim frá 13:00-16:00
Opið félagsstarf þri og mið frá 14:00-16:00
Félagsmiðstöðin Tunglið mán og fös
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst. Umsóknum má skila á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps eða í tölvupósti til elsa@vesturbyggd.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 609. fundur 14. mars 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 40. fundur 8. mars 2023
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 8. fundur 7. mars 2023
- Velferðarráð V-Barð | 45. fundur Velferðarráðs V-Barð 9. febrúar 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 7. fundur 15. febrúar 2023
- Sjá allar fundargerðir