A A A

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir fjármálastjóra

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir fjármálastjóra í 50% stöðu til afleysingar frá 01.08.2013 -01.02.2014.

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

 

Fjármálastjóri annast allar fjárreiður skólans. Í því er meðal annars fólgið að færa bókhald, gera fjárhags- og rekstraráætlanir, afstemmingar og fleira.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg.
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg.
  • Þekking á bókhaldi æskileg.
  • Skipulögð/lagður.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2013. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.
 

Umsóknarfrestur er til 30.maí 2013. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is eða í síma 8917384.
 

Skólameistari

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón