Félag áhugafólks um hreindýr á Vestfirði
Laugardaginn 3 desember verða stofnuð samtök áhugafólks um „Hreindýr á Vestfirði“ . Tilgangur samtakanna er að beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á heilbrigði hreindýranna, það er að segja hvort hætta sé á að þau geti smitað sauðfé af búfjársjúkdómum. Einnig að gerð verði rannsókn á gróðurfari á Vestfjörðum í þeim tilgangi að athuga hvort nægjanlegt æti sé fyrir dýrin.
Félagsmenn geta þeir orðið sem eiga lögheimili á Vestfjörðum, eiga þar fasteignir eða jarðir. Þeir sem vilja gerast félagsmenn í samtökunum skrái sig sem allra fyrst á hreindýr@skotvis.is Á stofnfundi samtakanna verður kosin stjórn þeirra, skipað í starfshópa og lög samtakanna rædd og síðan borin upp til samþykktar.
Fundarstaður hefur en ekki verið ákveðinn en líkur eru þó á að fundurinn verði haldinn á Hólmavík.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Fræðslunefnd | 16. fundur 14. febrúar 2024
- Sveitarstjórn | 630. fundur sveitarstjórnar 27. febrúar 2024
- Sveitarstjórn | 629. fundur sveitarstjórnar 13. febrúar 2024
- Sjá allar fundargerðir