A A A

Bátadagar á Breiðafirði 6 og 7 júlí 2013

Fyrirhuguð siglingaleið um Breiðafjörð
Fyrirhuguð siglingaleið um Breiðafjörð

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar (FÁBB), gengst nú fyrir bátahátíð súðbyrtra trébáta á Breiðafirði í sjötta sinn þann 6 og 7 júlí nk.
 

Dagskráin verður með þeim hætti að þáttakendur safnast saman með báta sína á Reykhólum á föstudaginn 5 júlí. Ef aðstæður leyfa verður möguleiki á sameiginlegu grilli saman á föstudagskvöldinu og þá verði farið yfir leiðarlýsinguna ferðarinnar og fróðleik um það sem fyrir augu mun bera. Laugardaginn 6 júlí verður siglt frá Reykhólahöfn kl. 10:00 og siglt NV með Reykjanesi um Staðareyjar og inn Þorska-, Gufu- og Djúpafjörð og aðstæður skoðaðar.
 
Áð verður við Teigsskóg og hann skoðaður, síðan verður siglt að Stað á Reykjanesi og lýkur ferðinni þar. Sunnudaginn 7. júlí verður farið kl. 10:00 frá Stað og siglt út í Sviðnur og deginum eytt með heimafólki sem fræðir um eyjuna og sögu hennar. Siglt til baka að Stað og eru þar ferðalok. Gera má ráð fyrir að ferðin taki 6-8 klst. hvorn dag.
 

Að sjálfsögðu ráða aðstæður, sjávarföll og veður mestu um hvernig siglingarnar verða og áætlunin getur því breyst ef aðstæður krefjast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð. Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að nauðsynlegur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð.
 

Allir súðbyrðingar er velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi.
 

Mjög góð aðstaða fyrir minni báta er á Reykhólum og á Stað og einnig er mjög góð aðstaða fyrir ferðamenn í Reykhólasveit. Sjá nánar á www.reykholar.is
 

Frekari upplýsingar veita: Sigurður Bergsveinsson, sberg@isholf.is, s: 893 9787 og Hafliði Aðalsteinsson, haflidia@centrum.is,  s: 898 3839

www.batasmidi.is

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón