A A A

Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um  styrki skv. 27.grein laga nr. 59/1992  um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum.

 

Byggðasamlaginu er heimilt að veita  styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.  Einnig  er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk  til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfssemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða  endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

 

Umsóknafrestur er til 20. nóvember 2014 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags, umsóknaeyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa er að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu.

 

  • Félagsþjónustan við Djúp,  Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík, sími 450 7000 / 450 5900 www.bolungarvik.is /  www.sudavik.is
  • Ísafjarðarbær, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður, sími 450-8000  www.isafjordur.is
  • Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps,  Höfðagötu 3, 510 Hólmavík, sími 451 3510/
  • 434 880.  www.strandabyggd.is / www.reykholar.is
  • Félagsþjónusta Vestur- Barðastrandasýslu, Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður, sími 450 2300 /

456 2539 www.vesturbyggd.is / www.talknafjordur.is

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón