Auglýsing: Deiliskipulag fóðurstöð Fjarðalax, Háanesi (Stóri Laugardalur) Tálknafirði
Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr, 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir fóðurstöð Fjarðalax, Háanesi (Stóri Laugardalur) Tálknafirði.
Deiliskipulagssvæðið er 0,6 ha að stærð, staðsett á Háanesi (Stóra Laugardal) í Tálknafirði. Gert er ráð fyrir 6000 m2 iðnaðarlóð með athafnasvæði á tveimur vinnuplönum, starfsmannahúsi, vélarhúsi og fóðursílóum. Markmið deiliskipulagsins er að forma lóð fyrir fóðurstöð í sem mestri sátt við nánasta umhverfi, sem einkennist af nálægð við sjó og fjöru.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps að Miðtúni 1 frá og með þriðjudeginum 11. nóvember nk. til 20. desember 2014. Tillagan er einnig til sýnis á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps, www.talknafjordur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskiplögin til 20. desember 2014.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, Miðtún 1, 460 Tálknafirði.
Skipulagsfulltrúi Tálknafjarðarhrepps
Óskar Örn Gunnarsson
Deiliskipulagsuppdráttur fóðurstöð Fjarðalax, Háanesi (Stóri Laugardalur) Tálknafirði (.pdf)
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir