Átt þú rétt á styrk vegna vöruflutninga?
Á Vestfjörðum getur styrkurinn numið allt að 20% af flutningskostnaði samkvæmt lögum nr. 160/2011 um svæðisbundna flutningsjöfnun.
Fulltrúar Byggðastofnunar verða með kynningarfund vegna umsókna um flutningsjöfnunarstyrki fimmtudaginn 14. mars kl 14:00 í fundarsal þróunarsetrisins á Ísafirði.
Hægt verður að taka þátt í fundinum gegnum fjarfundarbúnað á Hólmavík og í Skor þekkingarsetri á Patreksfirði.
Á heimasíðu Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is má finna upplýsingar um flutningsjöfnunarstyrki sem gagnlegt er að fara í gegn um fyrir fund. Umsóknarfrestur um styrki er til 31. mars n.k. en opnað verður fyrir umsóknir á allra næstu dögum.
Nánari upplýsingar veitir Anna Lea Gestsdóttir hjá Byggðastofnun í síma 455-5433/660-5544 (anna@byggdastofnun.is) og Jón Páll Hreinsson, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða í síma 450 3051/8994311 (jonpall@atvest.is)
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 609. fundur 14. mars 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 40. fundur 8. mars 2023
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 8. fundur 7. mars 2023
- Velferðarráð V-Barð | 45. fundur Velferðarráðs V-Barð 9. febrúar 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 7. fundur 15. febrúar 2023
- Sjá allar fundargerðir