Skemmtilegt og spennandi starf í félagsstarfi aldraðra í Vindheimum og heimaþjónusta
Tálknafjarðarhreppur auglýsir eftir starfsmanni til að hafa umsjón með félagsstarfi í Vindheimum og heimaþjónustu á Tálknafirði.
Unnið er í gefandi og skapandi umhverfi og þarf viðkomandi að geta unnið sjálfstætt og jafnframt í samstarfi við aðra. Um er að ræða u.þ.b. 55 % starf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
-
Sjá um félagsstarf í Vindheimum þrisvar í viku.
-
Sjá um veitingar og allt utanumhald á starfssemi félagsstarfs í Vindheimum. Ásamt því að sjá um þrif og annað sem þarf til að halda starfssemini gangandi.
-
Sinna heimaþjónstu þar sem hún hefur verið samþykkt í Tálknafirði.
Hæfniskröfur:
-
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt
-
Þarf að hafa góð tök á íslensku í ræðu og riti.
-
Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með að sýna frumkvæði í starfi.
-
Þarf að vera sveigjanlegur og
-
vera góður í mannlegum samskipum.
Umsóknafrestur er til 5.ágúst 2021 og viðkomandi þarf að geta byrjað í starfinu 1.september 2021.
Greitt er eftir samingum SIS við viðkomandi stéttafélag.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Arnheiði Jónsdóttur félagsmálastjóra, sími 4502300 arnheidur@vesturbyggd.is eða Ólaf Þór Ólafsson sveitarstjóra, sími 4502500 sveitarstjori@talknafjordur.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 16. fundur 5. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir